09.05.1941
Neðri deild: 55. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 834 í B-deild Alþingistíðinda. (2030)

131. mál, þegnskylduvinna

Jóhannes Jónasson:

Við 2. umr. þessa máls hafði ég fullnotað ræðutíma minn, er hv. þm. V.-Húnv. hóf sitt mál. Með því að orðum hans var að mestu leyti beint til mín, get ég ekki látið hjá líða, nú við þessa umr., að gera lítils háttar athugasemdir við ræðu hans. Í frumræðu minni hafði ég haldið því fram, að auðlindir lands vors væru það miklar og gjöfular, ef þær einungis væru hagnýttar með tímabærum atvinnuháttum, að óþarft mundi að spara laun við vinnuaflið í landinu. Voru hv. þm. það mikil. vonbrigði að heyra slíka kenningu af mínum vörum, sýndi hann síðan fram á það af miklum innileik, að öll hin beztu verk, jafnt líkamleg sem andleg, hefðu verið unnin af ást á sjálfu verkefninu og landi og þjóð, án þess að leggja áherzlu á það, að „innheimta daglaun að kvöldum“. Taldi hann víst, að ef þessi skoðanamáti minn væri almennur með þjóðinni, þá væri hún tvímælalaust á leiðinni til grafar. Hélt hann því loks fram, og með fullum rétti, að persónulega mundi ég ekki hafa lifað sjálfur eftir þessum kenningum, hvorki við erfiðisvinnu né andlega iðju, enda væri skoðun sem þessi harla óskáldleg að öllu leyti. Það fór eins fyrir mér og hv. þm. V.-Húnv., að ræða hans olli mér nokkrum vonbrigðum, — ekki vegna þess að hún væri óskáldleg, heldur þvert á móti einmitt vegna þess, hversu skáldleg hún var. Hv. þm. mega þó ekki skilja þetta svo, að ég hafi ekki gaman af skáldlegum ræðum. Hins vegar getur verið nokkuð hæpið að bregða of ljóðrænni blæju yfir jafnraunhæft fyrirbrigði og hér er um að ræða.

Nú er það svo, að ég er hv. þm. algerlega sammála um það, að flest hin beztu verk hafi verið unnin án þess að spurt væri um taxtakaup, og það er einmitt þetta, sem ég helzt mundi kjósa. Að taxtakaupið, það er að segja daglaunin til tryggingar lífsþörfunum, væru svo örugg og sjálfsögð, að enginn þyrfti að hafa hugann hálfan við spursmálið um næsta málsverð. Enginn skyldi halda, að verk sé betur unnið fyrir það, að engra launa sé fyrir það að vænta, heldur þrátt fyrir það — verkið mundi einmitt verða enn þá betur unnið í frelsi áhyggjuleysis um daglega afkomu. Tilvera vor er nú einu sinni háð ýmsum óskáldlegum þörfum, svo sem fæði og klæðum, húsi og heimili og fleiru því, sem í ritningunum er talið, og það er óhagganleg staðreynd, að hversu há sem hugsjón vor er eða ljóð vort lystilega kveðið, — sé þessum þörfum ekki fullnægt, verðum vér enn fljótari á leið vorri til grafar heldur en þó að vér séum andvígir skylduvinnu ungra manna. Og sagt get ég hv. þm. það í trúnaði, fyrst við á annað borð erum búnir að draga mína lítilfjörlegu persónu sér staklega inn í þessar umræður, að því miður hef ég stundum orðið að taka meira tillit en skyldi til auranna, sem von gat verið um í sambandi við skáldskap minn. Margt hefði þar orðið betur unnið og fágað, margt ýmist enn miskunnarlausara eða enn mildara, ef það hefði skapazt óháð „innheimtu daglaunanna“ og óttanum við að verða jafnvel sviptur þeim um miðjan dag. Og svo óskáldlegur er veruleiki lífs míns, að vegna þess að ég á konu og börn og langar til að byggja yfir þau ofurlítinn húskumbalda, til þess að þau þurfi ekki að vera á sífelldum hrakhólum, þá hef ég nú hugsað mér að stunda svokallaða Bretavinnu í sumar, enda þótt ég telji slíkt standa landráðum næst af öllu því, sem ég „landráðamaðurinn og föðurlandsleysinginn“ hef tekið mér fyrir hendur. En þetta er eingöngu vegna þess, að þarna er um hærra taxtakaup að ræða en við þá mjög svo ljóðrænu smalamennsku, sem ég hef stundað á fjöllum uppi undanfarin sumur.

Annars er það mér gleðiefni að heyra nú hv. þingmenn tala svo fjálglega um ólaunaða skylduvinnu, með því að nokkuð þrálátur orðrómur hefur gengið um það, að einmitt þingmenn hefðu til þessa ekki fyrirlitið „taxtakaup“ fyrir sín störf í þágu alþjóðar, jafnvel hoppað ofurlítið upp fyrir „taxtann“ í einstöku tilfelli. Mun fleirum en mér vel líka, að þeir gerast nú svo skáldlegir að hirða ekki um daglaun sín að kvöldi. Fegurst af öllu væri þó, ef þeir vildu hlífa vorri fátæku þjóð og enn þá fátækari æskulýð hennar við þessari fyrirhuguðu skylduvinnu, en leggja í þess stað byrðina á þá, sem efnin hafa og tekjurnar, án tillits til aldurs, og kynni þá svo að fara, að sumir hv. þm. sjálfir reyndust það efnum búnir og tekjuháir, að þeir fengju kærkomið tækifæri til að þjóna hugsjón sinni og ættjörðinni með því að „moka skít fyrir ekki neitt“ svo sem eins og tvær vikur á ári hverju. Skal ég strax á morgun manna glaðastur taka þátt í svo skáldlegum framkvæmdum.

Að öðru leyti þarf ég ekki að fjölyrða um sjálfan kjarna þessa máls, með því að rök mín frá fyrri umræðu standa óhögguð, að því er ég bezt fæ séð. Það hefur ekki verið hrakið, að þeir, sem kvöð þessi kemur niður á, fá sjálfir litlu eða engu um það ráðið, hvort hún verður upp tekin eður ei. Það hefur ekki verið hrakið, að hinum uppeldislega árangri má enn betur ná annaðhvort með fulllaunaðri vinnuskyldu eða ólaunaðri sjálfboðavinnu. Það hefur ekki verið hrakið, að hinn raunverulegi tilgangur frv. þessa er sá að gefa bæjarstjórnum landsins tækifæri til að ráðstafa ókeypis vinnuafli ungra manna eftir geðþótta. Og það hefur loks ekki verið hrakið, sem er sjálf þungamiðjan, að þegnskylduvinnan er úrelt hugsjón, sem á sér ekki stoð í núverandi þróunarstigi þjóðfélagsins. Það þjóðfélag, sem viðheldur úreltum atvinnuháttum með þeim árangri, að mikill hluti æskulýðsins fær ekki verk til að vinna á friðartímum, heldur er hafður á útigangi um göturnar, þar til hann verður að siðlausum skríl, — slíkt þjóðfélag hefur engan siðferðislegan rétt til þess að gera þegnlegar kröfur á hendur þeim æskulýð, sem þannig er að búið, — það er einmitt slíkt þjóðfélag, sem er á leiðinni til grafar.