26.05.1941
Sameinað þing: 21. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 159 í B-deild Alþingistíðinda. (205)

1. mál, fjárlög

Magnús Jónsson:

Ég hef nú ekki að þessu sinni frekar en að undanförnu verið mjög fjölþreifinn til að koma með brtt. við fjárl. Ég held, að mitt nafn sé við tvær brtt. á þskj. 622. Skal ég ekki minnast neitt á þá fyrri, því að ég er þar á kafi í fjölda nafna, þ. e. við brtt. VI, og býst ég við, að annar muni mæla fyrir þeirri brtt. En ég er einn um IX. brtt. á sama þskj., sem er um það, að ríkisstj. heimilist á 22. gr. að greiða 10 þús. kr. til rekstrar húsmæðrakennaradeildar í sambandi við húsmæðraskóla í Reykjavík. Ég bar þessa brtt. fram eða skrifaði hana og sendi hana áður en frv. um húsmæðrafræðslu í kaupstöðum var afgr. Mér þótti þess vegna viðkunnanlegra að setja þetta sem heimild, ef l. yrðu samþ. og kæmust í framkvæmd. Og nú er frv. þetta orðið að l. Mér þótti því rétt að taka upp þessa heimild fyrir ríkisstj. til þessarar fjárgreiðslu, því að í 11. gr. þessara 1. er ákvæði um, að heimilt sé að setja á stofn húsmæðrakennaradeild í sambandi við húsmæðraskóla í Reykjavík, þegar fé sé veitt til þess á fjárl. Ég skal ekki segja um það, hvað hv. fjvn. segir um þessa brtt. En ég hef sett hana hér fram, án þess að ég haldi henni til streitu að nokkru leyti, ef á annað borð er litið svo á, að ríkisstj. hafi hvort sem er heimild til þess að greiða þann kostnað, sem verður við það að setja upp húsmæðrakennaradeild hér í Reykjavík.

Ég skal ekki ræða nú sér staklega um nauðsyn á húsmæðrakennarafræðslu. En það liggur í augum uppi, að eftir því sem húsmæðraskólum fjölgar, — og það virðist eindreginn þingvilji fyrir því að auka húsmæðrafræðslu landsins, ekki aðeins til sveita, heldur einnig í kaupstöðum, — þá er augljóst, að það verður að hafa húsmæðrakennarafræðslu. Því að það er verra en ekki neitt að setja upp hóp af húsmæðraskólum, ef ekki eru til virkilega fullfærir kennarar til þess að annast fræðslu við þessa skóla. Það er nú þegar til heimild um slíka fræðslu við einn skóla í sveit, og það væri eðlilegt, að slík heimild væri líka til viðkomandi einum slíkum skóla í kaupstað, sem búast má þá við, að verði í Reykjavík.

Vona ég, að það, sem þessi brtt. fer fram á, fái góðar undirtektir, bæði hjá hæstv. þingi og ríkisstj.