26.05.1941
Sameinað þing: 21. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 162 í B-deild Alþingistíðinda. (208)
1. mál, fjárlög
*Ásgeir Ásgeirsson:
Ég flyt till. um 600 kr. eftirlaun til Hólmgeirs Jenssonar dýralæknis. Hólmgeir hefur verið síðustu 40 árin eini dýralæknirinn á Vestfjörðum. En nú er kominn dýralæknir á Ísafirði og Hólmgeir farinn að eldast, svo að mér þykir réttara, að hann fái sín eftirlaun á 18. gr. heldur en að hans tekjur séu greiddar af þeirri upphæð, sem ætluð er ólærðum dýralæknum. Af þeirri upphæð fékk hann á þessu ári 400 kr., en hafði áður 800 kr. Ég legg til, að hans eftirlaun verði 600 kr.; og ef það verður samþ., geri ég ráð fyrir, að honum verði ekki greitt af þessum almenna dýralæknastyrk. Aftur á móti ef varatill. um 300 kr. verður samþ. og menn kjósa það heldur, þá vil ég gera ráð fyrir, að hann fái áfram sínar 400 kr. eins og hann hefur fengið, og þessar 300 kr. verði þá bara til viðbótar, svo að hann njóti hér eftir áþekkra launa við það, sem hann hefur áður haft. Þessu vildi ég gera, grein fyrir, áður en gengið er til atkv., hvernig stendur á varatill.