23.05.1941
Efri deild: 66. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 873 í B-deild Alþingistíðinda. (2125)

113. mál, sala Reykjarhóls ásamt Varmahlíðar

Sigurjón Á. Ólafsson:

Herra forseti! Ég sé, að hv. frsm. er ekki við og ég mun vera sá eini úr menntmn., sem er viðstaddur. Þetta frv. er flutt af menntmn. Nd. og fór gegnum þá d. óbreytt. Þetta mál lá síðan fyrir menntmn. þessarar d., og hún vill líka leggja til, að það verði samþ. án breyt., en í frv. felst heimild handa ríkisstj. til að selja Varmahlíðarfél. svonefnda jörðina Reykjarhól í Seyluhrepi í Skagafjarðarsýslu, ásamt nýbýlinu Varmahlíð, auðvitað með því skilyrði, að þar verði reistur héraðsskóli Skagfirðinga. Það, sem veldur því, að farið er fram á þetta, er, að þarna er hiti í jörðu, og það ræður hér mestu um. Eins og ég gat um, er n. sammála um, að heimildin verði veitt.