29.04.1941
Efri deild: 47. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 876 í B-deild Alþingistíðinda. (2136)

44. mál, húsmæðrafræðsla í sveitum

Bernharð Stefánsson:

Mér þykir nú þetta dálítið undarlegt með þennan fyrirvara, sem tveir af hv. nm. hafa sett við sínar undirskriftir undir nál., og óneitanlega væri dálítið fróðlegt að fá að vita, hvort þeir eru með málinu eða móti. Frv. um húsmæðrafræðslu í kaupstöðum er komið til 3. umr. í hv. Nd., það er komið lengra í þeirri d., sem það byrjaði í, heldur en þetta frv. er komið hér, sem flutt var í þessari d. Og ef þetta mál á að bíða eftir frv. um húsmæðrafræðsluna í kaupstöðum, sem er í Nd., og hafa samflot með því, eins og hv. þm. hafa talað um, þá gæti náttúrlega svo farið, að frv. um húsmæðrafræðslu í kaupstöðum yrði samþ. hér í hv. d. til fullnustu og þetta frv. einnig samþ. út úr d., en að þá væri Alþ. slitið daginn eftir eða eitthvað um það, þannig að það yrði eingöngu frv. um húsmæðraskólana í kaupstöðunum, sem yrði þá að 1., en ekki þetta frv. Ég hefði kunnað miklu betur við það, að það hefði verið tekin hrein afstaða til þessa máls, annað hvort með eða móti málinu, en því hefði ekki verið blandað á þennan hátt saman við annað mál, sem ekki stendur á neinn hátt verr að vígi heldur en þetta mál, eins og ég hef nú sýnt. En góðra gjalda vert er það, að þetta mál á þó, eftir vilja þeirra hv. nm., sem skrifað hafa undir nál. með fyrirvara, að fá að ganga óhindrað til 3. umr. En ég segi það, að ef það á svo að bíða eftir því, að þetta mál, sem er í hv. Nd. enn þá, komist hér til 3. umr., þá er það að öllum líkindum síðasta umr. þess máls, sem þá fer fram. En þá eru a. m. k. þrjár umr. eftir um þetta mál, sem hér liggur fyrir á dagskránni.

Ég held, að það væri nú óhætt fyrir þá, sem bera húsmæðraskólana í kaupstöðum fyrir brjósti, að lofa þessu máli að ganga héðan út úr hv. d. Þeirra skoðanabræður geta þá í Nd. tekið það í einhvers konar gíslingu til tryggingar því, að hitt málið gangi fram hér í þessari hv. d.