29.04.1941
Efri deild: 47. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 877 í B-deild Alþingistíðinda. (2137)
44. mál, húsmæðrafræðsla í sveitum
Forsrh. (Hermann Jónasson) :
Ég sé, að í nál. er mælt með framgangi þessa máls, þó því aðeins, að trygging sé fyrir því, að frv. um húsmæðrafræðslu í kaupstöðum verði lögfest á þessu þingi. Og er þá víst ætlunin, að þetta mál gangi til 3. umr. eftir því, sem komið hefur fram hér í umr. En í sambandi við það vil ég taka það fram, að ég tel það alveg fullvíst, að frv. um húsmæðrafræðslu í kaupstöðum verði að 1. á þessu þingi. Það er ætlazt til þess, og því er fylgt alveg óskipt af allri ríkisstj. Og ríkisstj. hefur lofað því að beita sér sérstaklega fyrir því, að svo verði. Því að húsmæður hér í bænum hafa sýnt ákaflega mikinn áhuga á því að koma húsmæðraskóla á stofn hér í Reykjavík, og hans er hér mjög mikil þörf. Bæði húsmæðurnar, eins og ég sagði, og margar stofnanir einnig hafa sýnt þann áhuga á þessu nauðsynjamáli, að ég tel alveg sjálfsagt, að málið verði afgr. á þessu þingi. Ég spurðist fyrir um málið í gær eða dag, og ég hygg, að ekki verði mikill dráttur á því, að það verði afgr. í Nd. Það má geta þess í sambandi við það mál, að áhugi fyrir því virðist vera mjög almennur hér í bænum, og það hefur safnazt mikið gjafafé fyrir málið, m. a. hefur búnaðarþing sýnt áhuga sinn fyrir því máli með því að taka þátt í gjöfum. Ég hefði ekki búizt við, að það yrði dregið í efa, að málið gengi fram.