29.04.1941
Efri deild: 47. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 877 í B-deild Alþingistíðinda. (2138)

44. mál, húsmæðrafræðsla í sveitum

Árni Jónsson:

Ég hef ásamt hv. 2. landsk. (SÁÓ) skrifað undir nál. með fyrirvara, sem hann hefur gert grein fyrir. En eftir þá ræðu, sem hæstv. forsrh. nú flutti, verð ég fyrir mitt leyti að telja, að fengin sé mikil trygging fyrir því, sem við gerðum að skilyrði fyrir fylgi okkar við þetta frv. Mun ég því óhikað greiða því atkv. til 3. umr.

Það stendur svo á, að frv. um húsmæðrafræðslu í kaupstöðum er nú til 3. umr. í hv. Nd. Og mér þætti fara vel á því, að það kæmi næsta dag á dagskrá hér í hv. d., og að þetta mál kæmi ekki til 3. umr. fyrr en við í n. gætum athugað hitt frv., hvort við gætum ekki orðið sammála um það.

Eftir ræðu hæstv. forsrh. virðist mér þeim tilgangi náð, sem við tveir nm. vildum ná með því að skrifa undir nál. með fyrirvara.