26.05.1941
Sameinað þing: 21. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 174 í B-deild Alþingistíðinda. (214)

1. mál, fjárlög

Helgi Jónasson:

Ég hafði ekki ætlað mér að taka til máls nú né koma hér með sérstakar brtt., vegna þess að ég á sæti í fjvn. Til þess liggja þær ástæður, að látið var í veðri vaka, að fjvn. ætlaði að reyna að halda dálítið í, svo unnt yrði að afgreiða fjárl. nokkurn veginn sómasamlega. Þetta hefur ekki tekizt, og n gerir n. sjálf m. a. s. ráð fyrir, að fjárl. verði afgr. með töluverðum halla.

Enn fremur má sjá það af þeim till., sem einstakir þm. hafa þegar borið fram, að vilji þeirra virðist yfirleitt ekki vera mikill í sparnaðaráttina. Þess vegna höfum við báðir þm. Rang. flutt brtt. við brtt. fjvn. á þskj. 638, um fé til fyrirhleðslu á vatnasvæði Þverár og Markarfljóts.

Brtt. okkar er V. liður á þskj. 654; en þar er farið fram á, að fjárveitingin til þessara framkvæmda sé hækkuð upp í 150 þús. kr. úr 70 þús., sem fjvn. gerir ráð fyrir.

Þetta mál hefur áður verið rætt svo mikið hér í þinginu, að ekki þarf að fjölyrða um nauðsyn þessarar fjárveitingar. Það nægir að geta þess, að á þennan hátt er verið að verja land margra sveita fyrir eyðingu, jafnframt því, sem þessum fyrirhleðslum fylgja miklar ókeypis samgöngubætur. Síðan árnar voru brúaðar, hefur reynzt örðugt að halda þeim í sama farvegi, og er því einnig af þeirri ástæðu mikil þörf á varnargörðum.

Vegamálastjóri hefur lýst yfir því, að ekki mundi þurfa nema um 150 þús. til að ljúka þessu verki. Svo þess vegna væri eðlilegast að gera það nú þegar. Enda skiptir það engu máli fyrir ríkissjóð, hvort hann greiðir meira eða minna nú í ár.

Við höfum líka handbært fé, sem hann getur fengið að láni til verksins. Það söfnuðust í haust 100 þús. kr. í þessu skyni, sem ríkisstj. voru boðnar til láns. Fjármálaráðh. vildi ekki taka fé þetta að láni, en gaf hins vegar góðan ádrátt um ríflega fjárveitingu í fjárl. næsta árs.

Þegar til kom, varð sú upphæð ekki nema kr. 50 þús., sem mér tókst svo ekki að hækka nema í um 20 þús. í fjvn.

Ég hefði sætt mig vel við það, ef ég hefði séð, að þingið vildi fara gætilega í fjármálunum yfirleitt. En þegar ég sé, að viljinn til sparnaðar kemur hvergi fram, þá held ég, að megi segja, að ekki muni mikið um þá hækkun, sem hér er farið fram á. Annarra till. geri ég ekki að umtalsefni, en vona, að hv. Alþingi samþ. þessa brtt., því fjárveitingin á fullan rétt á sér, því hér er um stórt nauðsynjamál að ræða.