23.05.1941
Neðri deild: 65. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 881 í B-deild Alþingistíðinda. (2153)

44. mál, húsmæðrafræðsla í sveitum

Frsm. (Bjarni Bjarnason) :

Þetta mál gekk ágreiningslaust, held ég, að ég megi fullyrða, gegnum hv. Ed. og er flutt til þess að samræma þessi 1. um húsmæðrafræðslu í sveitum við héraðsskólal., sem samþ. voru á næstsíðasta þingi, um framlög til byggingar skólanna. Og einnig er nú svo komið, að í frv., sem afgr. hefur verið héðan frá hv. Nd. um húsmæðrafræðslu í kaupstöðum, hafa verið samþ. ákvæði sömu tegundar og þetta, sem hér er um að ræða í þessu frv. um stofnkostnaðinn.

Ég vil vænta þess, að málið gangi áfram breytingalaust.