17.04.1941
Efri deild: 37. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 884 í B-deild Alþingistíðinda. (2161)

101. mál, byggingar og landnámssjóður

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson) :

Ég skal ekki fara langt út í þetta mál nú. Hv. 2. landsk. gaf í skyn, að hann óskaði heldur eftir að fá að ræða þetta mál í n.

Ég vil mótmæla því, sem hann sagði í byrjun sinnar ræða, að byggingar- og landnámssjóður væri hugsaður af jafnaðarmönnum og framkvæmdur af framsóknarmönnum. Þetta er ekki rétt. Ég hygg, að hann hafi verið hugsaður bæði í Framsfl. og í Sjálfstfl., því að helztu menn við þá lagasmíði hygg ég að hafi verið Jón heitinn Ólafsson og hv. þm. S.-Þ. (JJ). En það er ekki ástæða til að fara að togast á um þessa hluti nú. Ég vildi bara leiðrétta þetta.

Svo minntist hv. 2. landsk. á, að ekki væri nauðsyn á að afnema nýbýlastjóra. Það má kannske segja, að það hafi ekki verið nauðsyn. En fyrir okkur vakti að gera meðferð þessara mála einfaldari, þannig að úr bæði embætti nýbýlastjóra og nýbýlan. yrði þá ein stofnun, nýbýlastjórn, sem yrði hægari í vöfum og um leið ódýrari. Því að það verður alltaf dýrara að hafa 4 menn heldur en 3 við sama starfið.

Að nýbýlaskrifstofan hafi verið rekin af Búnaðarfélaginu, er ekki rétt. Hún hefur verið sjálfstæð skrifstofa, þó að hún hafi verið í búnaðarfélagshúsinu, og hefur haft sérstakt skrifstofufólk út af fyrir sig. Hún er því alveg sjálfstæð stofnun, en ekki rekin undir stjórn Búnaðarfél. Ísl. hað er ekki heldur bundið við það, að það sé búnaðarmálastjóri, sem er nýbýlastjóri. Eftir frv. er það formaður nýbýlastjórnar, sem hefur á hendi aðalstarf í nýbýlastjórninni. En það er venja, að þeir menn séu skipaðir af þeim ráðh., sem stýrir þeirri stjórnargrein, sem það heyrir undir, og þannig finnst mér einnig bezt fara á því hér.

Þá minntist hv. 2. landsk. á eitt, sem mér virðist fjarstæða, að fara að fjölga svo í nýbýlastjórn, að Alþfl. gæti eftir hlutfallskosningu fengið einn mann í. nýbýlastjórn. Þá yrði að fjölga svo mönnum í þeirri stj., að það yrði hægt. En hitt er annað mál, hvort ekki væri hægt að koma því við, að maður frá Alþfl. gæti fengið þar sæti með samningum. En ekki sýnist mér nú, að hægt mundi vera að fjölga svo þessum mönnum með hlutfallskosningu í landbn. beggja d., að Alþfl. gæti fengið mann kosinn í stj., því að þó að bætt yrði við tveimur mönnum í hana, er alls ekki víst, að annar þeirra yrði Alþfl.-maður. En það er sjálfsagt að tala við hv. 2. landsk. um þetta í n. hað er of snemmt að karpa meira um. þetta mál að svo komnu. Hv. 2. landsk. er velkominn á fund okkar, þegar við ræðum um málið, og getur gert þar sínar till. og aths.