08.05.1941
Neðri deild: 54. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 889 í B-deild Alþingistíðinda. (2176)

101. mál, byggingar og landnámssjóður

Fjmrh. (Jakob Möller) :

Ég hef lagt fram brtt. við þetta frv., sem ég býst við, að frsm. n. hafi ekki athugað, að fram var komin, og hefur því ekki haft tækifæri til að athuga hana, svo ég geri að sjálfsögðu ráð fyrir því, að það verði að samkomulagi, að ég taki þessa brtt. aftur til 3. umr., en þá með því móti, að n. taki hana til athugunar. Það er brtt. á þskj. 408, og er hún þess efnis, að jafnframt því, sem framlag ríkissjóðs til byggingar- og landnámssjóðs er ákveðið eins og í 1. gr. frv. er getið, þá sé svo mælt fyrir, að tillag til sjóðsins skv. 14. gr. tóbakseinkasölulaganna falli niður.

Nú vita hv. þm. að sjálfsögðu, hvernig það er til komið, að tekjur tóbakseinkasölunnar renna til byggingar- og landnámssjóðs og til verkamannabústaða í kauptúnum og sjávarþorpum. Það var þannig, að þegar tóbakseinkasalan var tekin upp á ný, með l. frá 1932, þá var svo ákveðið í þeim 1., að öllum ágóða af tóbakseinkasölunni skyldi skipt að jöfnu milli byggingar- og landnámssjóðs og sjóðs verkamannabústaða. Hins vegar var þá svo ráð fyrir gert, að ágóðinn af henni yrði aldrei meiri en sem svarar 200 þús. kr.

Þetta var mikið deilumál á þingi, eins og hv. þm. muna, og var því haldið fram af þeim, sem vildu koma á einkasölu að nýju, að þó að verð á tóbaki yrði hækkað frá því, sem þá var í frjálsum viðskiptum, mundi, eigi að síður verða ágóði af sölunni, og það var tilgangurinn, að sá ágóði rynni til einhverra þjóðþrifafyrirtækja, og urðu þá þessir 2 sjóðir fyrir því.

Nú hefur þetta gerbreytzt síðan. Það var fallið frá því að halda tóbaksverðinu föstu, og hefur það síðan verið hækkað mjög mikið. Og í staðinn fyrir, að gert var ráð fyrir því, að ágóðinn yrði 200 þús. kr., var hann síðasta ár 1400 þús. kr.

Nú hafa fyrir nokkru síðan verið sett í sérstök lög, sem alþekkt eru undir nafninu „bandormurinn“, ákvæði um, að framkvæmd þessarar gr. tóbakseinkasölul. skuli frestað. Þau l. eru í gildi fyrir 1942, en falla úr gildi, nema þau verði sérstaklega endurnýjuð. Nú þykir réttara. a. m. k. hvað snertir þetta atriði, að þá falli atkvæði þeirra laga niður, en að framlag ríkissjóðs til byggingar- og landnámssjóðs og byggingar verkamannabústaða verði ákveðið á einum stað eftir því, að hvaða niðurstöðu þingið kemst um það, hvert framlagið eigi að vera, en ekki vera að binda það við þetta sérstaka fyrirtæki ríkissjóðs, tóbakseinkasöluna, að taka einhvern hluta af tekjum hennar til framlagsins. Það er augljóst., að réttast er, að á einum stað sé ákvæði um það, hvað framlag ríkissjóðs til þessara sjóða eigi að vera.

Ég sé svo ekki ástæðu til þess að orðlengja þetta frekar að sinni, en vil biðja hv. landbn.,

að taka þessa till. mína til athugunar milli umr. Ef henni þykir rétt að hækka framlagið, með tilliti til þess að þetta eigi að falla niður, þá má náttúrlega um það ræða. En ég vil í þessu sambandi vekja athygli á því, að í lögunum um byggingar- og landnámssjóð er ekki gert ráð fyrir þessum tekjum í sjóðinn. Það hefur verið gerð grein fyrir því, hvaða tekjur séu í sjóðnum, og þar eru ekki tilgreindar sérstakar tekjur af ágóða tóbakseinkasölunnar. Þess vegna geri ég ekki ráð fyrir neinni hækkun á framlagi ríkissjóðs í sambandi við þetta, En eins og ég sagði, er þetta að sjálfsögðu samkomulagsatriði, sem þingið tekur þá til meðferðar.