08.05.1941
Neðri deild: 54. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 891 í B-deild Alþingistíðinda. (2179)
101. mál, byggingar og landnámssjóður
Haraldur Guðmundsson:
Út af ummælum hv. þm. A.-Húnv. vildi ég taka það fram, að ég álít, að ekki komi til mála að fella úr l. ákvæðin um framlög til byggingarsjóða í kaupstöðum og kauptúnum, nema því aðeins, að frv. um það framlag, sem er á ferð í þinginu, verði samþ. En það snertir ekki beinlínis það mál, sem hér liggur fyrir, að tala um það frv. En ég geri ráð fyrir, að það muni koma fram síðar á þinginu. Þetta frv. er komið frá Ed. og til þessarar d. og til allshn., og væntanlega athugar sú n. frv., áður en það kemur til 2. umr.