10.05.1941
Neðri deild: 56. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 891 í B-deild Alþingistíðinda. (2182)
101. mál, byggingar og landnámssjóður
Bjarni Ásgeirsson:
Ég skal taka fram, af því að ég veit ekki, hvort hv. frsm. hefur getað fylgzt með þessum umr., að n. hefur rætt þessa brtt., og ég held, að ég fari rétt með, þegar ég segi, að hún gat ekki fallizt á hana. Það er mál út af fyrir sig, hvort á að breyta styrkveitingum til byggingar- og landnámssjóðs frá því, sem nú er í l., þar sem honum er nú ætlað að fá hluta af tekjum tóbakseinkasölunnar, en veita í þess stað sérstakan styrk til hans. Ég legg ekki sérstakt kapp á það. Hitt sé ég ekki, að réttlátt sé að breyta þannig 1. að því er snertir byggingar- og landnámssjóð, en að hliðstætt ákvæði um verkamannabústaði sé látið vera. (Félmrh.: Það er komin brtt. um það og var útbýtt í dag). Ég vil samt fara fram á, að málið sé tekið af dagskrá nú, — ég held, að sú ósk sé í samræmi við vilja nm., — svo að hægt sé að athuga, hvort ekki sé hægt að fá styrkinn hækkaðan.