12.05.1941
Neðri deild: 57. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 898 í B-deild Alþingistíðinda. (2225)
122. mál, verkamannabústaðir
Frsm. (Vilmundur Jónason) :
Allshn. hefur athugað þetta frv. og leggur til, að það verði samþ. með nokkrum viðauka, sem er að finna á þskj. 442. Er aðallega um tvö atriði að ræða.
Hið fyrra um, að niður falli tillag til byggingarsjóðsins frá tóbakseinkasölu ríkisins, en í þess stað komi beint framlag úr ríkissjóði, að upphæð 150 þús. kr. árlega. Þetta er í samræmi við breyt. á l. um byggingar- og landnámssjóð, sem þegar hafa verið samþ., og er þessi till. borin fram í samráði við fjármálaráðherra.
Hitt atriðið er sjálfsagt mál og í samræmi við 1. gr. frv., um, að hámark tekna þeirra manna, sem eiga að njóta þeirra hlunninda, sem um er að ræða, skuli hækka í samræmi við vísitöluna. Ég geri ekki ráð fyrir, að frv. þurfi frekari skýringa við.