19.05.1941
Efri deild: 63. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 899 í B-deild Alþingistíðinda. (2232)

122. mál, verkamannabústaðir

Frsm. (Sigurjón Á. Ólafsson) :

Þetta frv. hefur verið afgr. í Nd., og hafa þar verið gerðar á því ýmsar breytingar. Aðalbreytingin er í því fólgin, að ríkissjóður leggi árlega í sjóðinn 150 þús. kr., en jafnframt falli niður tillag til sjóðsins samkv. 14. gr. l. nr. 58 8. sept. 1931, um einkasölu ríkisins á tóbaki. Eins og kunnugt er, hefur orðið frestun á þessum ákvæðum, en Nd. taldi rétt að breyta þessu eins og segir í frv., og mun það hafa verið í samráði við fjmrh. Að öðru leyti er frv. ekki breytt, en við athugun á frv. kom í ljós, að nauðsynlegt var að gera breyt. á tilvísun til laga, sem Nd. hefur gert í frv., og á þskj. 540 er gerð ein breyt. á þessu við 1. gr. frv., að fyrir „sömu lagagrein“ kemur: 3. gr. fyrrnefndra laga, nr. 3 1935. N. flytur einnig brtt, við 1. og 2. gr. frv. á þskj. 523, að fyrir „laganna“ komi: laga nr. 3 9. jan. 1935. Þessar leiðréttingar hafa nákvæmlega verið athugaðar í samráði við skrifstofu Alþingis. Svo er ein brtt. enn þá, en hún er á þskj. 541, frá hv. 1. þm. N.-M. og hv. 5. landsk., og í brtt. er allmikil efnisbreyting, því þar er ætlazt til í fyrsta lagi, að 2. og 3. málsgr. 1. gr. falli niður. M. ö o., að uppbót á styrki, sem um er talað í frv., falli niður. Sem afleiðing af l. brtt. er önnur brtt., um að 2. gr. frv. falli niður, og þriðja brtt. um að 3. gr. falli niður.

Ef þessar brtt. verða samþ., þá er frv. þar með að engu gert. Ég hef ekki enn þá séð rökin fyrir þessum brtt., en mér koma þær dálítið einkennilega fyrir sjónir, að þegar hv. d. hefur sýnt vilja sinn í að auka styrki m. a. í byggingar- og landnámssjóð, þá skuli þessir hv. þm. koma með brtt., sem fara í þá átt að gera frv. að engu, þ. e. a. s. þessar 150 þús. kr. eiga að fá að standa.

Ég mun svo ekki segja fleiri orð um þetta, a. m. k, ekki fyrr en ég hef heyrt rökin fyrir þessum brtt.