23.05.1941
Efri deild: 66. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 901 í B-deild Alþingistíðinda. (2237)
122. mál, verkamannabústaðir
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti! Þegar þetta mál var hér í hv. d. til umr. síðast, lýsti ég afstöðu minni og hv. meðflm. míns til þess, sem hlaut að velta á því, að þeim stofnunum, sem skiptu hagnaði tóbakseinkasölunnar með sér á sínum tíma, yrði ekki mismunað nú, en hefðu jafnmikið fé út að lána. Þá mælti ég og fyrir till. mínum á þskj. 541.
Nú hefur nokkuð verið lagfært síðan þá, um leið og samþ. var áðan frv. til 1. um byggingar- og landnámssjóð, þó einkum sé enn þá tekið til greina sjónarmið ríkissjóðsins. Sættum við flm. okkur því eftir atvikum við þessa lagfæringu, og lýsi ég yfir því, að allar brtt. á þskj. 541 eru teknar aftur.