08.05.1941
Neðri deild: 54. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 910 í B-deild Alþingistíðinda. (2320)

128. mál, sauðfjársjúkdómar

Stefán Stefánsson:

Ég hef leyft mér ásamt hv. 7. landsk. að bera fram brtt. á þskj. 367. Þessi brtt. er við 5. gr. frv., að á eftir 4. tölul. gr. komi nýr töluliður: 5. Riðuveiki. — Við flm. teljum fullkomna ástæðu til þess, að riðuveikin verði tekin hér með, og vil ég fara um hana örfáum orðum. Á Alþingi 1938 bar é fram, ásamt hv. l. landsk. og 3 öðrum hv. þm., þáltill. þess efnis, að ríkisstj. léti fara fram rannsókn á þessari veiki, og þá sérstaklega í Svarfaðardal, þar sem hún hefur geisað í 30 ár, og að allur kostnaðurinn af þeirri rannsókn greiddist úr ríkissjóði. Til var að vísu fjvn., og á síðasta þingi bárum við fram tilmæli til hennar um, að hún tæki upp 5 þús. kr. fjárveitingu til þeirra, sem fyrir mestu tjóni hefðu orðið. Sú till. fékk ekki náð fyrir augum fjvn. og var felld.

Um þessa riðuveiki er það að segja, að þó hún hafi stungið sér niður hér og þar í landinu, þá hefur hún hvergi valdið eins miklum spjöllum og í Svarfaðardal. Nú hefur hún geisað þar í 30 ár, og á þeim bæjum, sem hún kom fyrst á, er hún enn, þrátt fyrir fjárskipti og ýmsar tilraunir til að útrýma henni. Nokkrir menn hafa fengizt við rannsóknir á þessari veiki, dýralæknir Eyjafjarðarsýslu (hv. þm. Ak.), próf. Niels Dungal og Ásgeir dýralæknir Einarsson, en það hefur engan árangur borið. Hins vegar hefur veikin verið svo almenn, að þegar á árinu 1938 hafði hún gripið um sig hjá 56 fjáreigendum í landinu. Síðan hefur þeim fjölgað ört, og ýmsir bændur hafa orðið næstum gersamlega sauðlausir af völdum hennar. Mörg heimili hafa misst upp undir 100 fjár hvert.

Ég sé ekki ástæðu til að fara um þetta fleiri orðum og vænti, að hv. þm. sjái, að úr því að setja á heildarlöggjöf um að styrkja bændur, sem beðið hafa tjón af völdum þeirra sauðfjársjúkdóma, sem í frv. greinir, þá sé ekki síður ástæða til að taka þessa riðuveiki með, vegna þeirra stórkostlegu spjalla og tjóns, sem hún hefur bakað bændum í Svarfaðardal, og gera tilraun til þess að hefta útbreiðslu hennar og koma í veg fyrir, að hún grípi um sig um allan Eyjafjörð eins og útlit er fyrir, ef hún heldur stöðugt áfram vestan megin fjarðarins.