08.05.1941
Neðri deild: 54. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 911 í B-deild Alþingistíðinda. (2321)
128. mál, sauðfjársjúkdómar
Frsm. (Pétur Ottesen) :
Hv. þm. V.-Sk. minntist á það í upphafi síns máls, að eiginlega hefði ekki verið gerð eins skýr grein fyrir þessu frv. og þörf hefði verið á eða ætla hefði mátt. Að því leyti, sem kann að vera áfátt um þetta, skal ég gjarnan f. h. landbn. verða við tilmælum hans um að gera grein fyrir þeim breyt., sem í frv. þessu felast, ef það mætti m. a. verða til þess, að hann liti ekki jafneinstrengingslega á þetta mál og með jafnlitlum skilningi á því, hvaða tjóni þessi veiki hefur valdið á þeim svæðum, sem hún geisar.
Það, sem ég hef fyrst um þetta frv. að segja, er það, að hér eru sameinuð í eitt fern lög, sem gefin hafa verið út á mismunandi tímum í sambandi við ráðstafanir út af mæðiveikinni. Fyrir þá, sem eiga að framkvæma þessi lög, er það út af fyrir sig hagræði að hafa þau á einum og sama stað. Auk þess er í þessu frv., sem telja má til nýmælis, tekið upp í eina grein og dregið saman í eina heild verkefni það, sem framkvæmdanefnd mæðiveikivarnanna hefur með höndum. Ég þarf ekki að fara neitt inn á það nánar, því það kemur svo skýrt fram í 3. gr. frv., að við það þarf engu að bæta. Þá eru í 5. gr. frv. tekin upp í eina heild ákvæði um það, til hvaða tegunda af veiki þessar ráðstafanir skuli ná. Fyrsta löggjöfin, sem sett var um þetta, tók eingöngu til mæðiveikinnar, sem þá virtist vera eini og aðalkvillinn, sem borizt hafði inn í landið með fé því, sem flutt var hér inn fyrir mörgum árum og varð til þess að leiða yfir okkur þennan ófarnað. Síðar kom fram, að annar fylgifiskur þessa innflutnings var garnaveikin, sem færzt hefur mjög í aukana og breiðzt út víða um land, sérstaklega á Austurlandi. Þá hefur síðan komið upp ein tegund, sem rekja má fullkomlega til þessa innflutnings, en það er sú nýja tegund mæðiveiki, sem komið hefur upp í Þingeyjarsýslu og farin er að valda þar mjög miklu tjóni. Það þykir óhjákvæmilegt, eins og nú er komið, að gera sams konar ráðstafanir gagnvart þessum pestum eins og gerðar hafa verið að undanförnu gagnvart mæðiveikinni að því er snertir varnir og þær bætur, sem bændur fá í sambandi við fjárfelli, sem leiðir af þessari veiki. Þá hefur verið tekinn hér inn í 4. lið sá sjúkdómur, sem kýlaveiki nefnist. Þrátt fyrir það, að þessi liður hafi verið tekinn inn í þetta frv., þá býst ég við, að það geti orkað tvímælis, hvort sú tegund veiki eigi að koma undir þessi ákvæði. Ég vil þess vegna nú þegar taka fram fyrirvara um það, að landbn. taki þetta til athugunar að nýju, og ég vildi skjóta því til hv. 3. landsk., hvort hann vildi ekki taka aftur sína brtt. til 3. umr. í sambandi við nánari athugun af hálfu landbn. um þetta efni. Ég vil mjög eindregið mælast til þess, að hann verði við þessum tilmælum mínum.
Það, sem ég vil næst minnast á í sambandi við þetta, er, að það hefur verið tekinn út úr löggjöfinni um þetta efni, um varnir gegn útbreiðslu nokkurra næmra sauðfjársjúkdóma og stuðning til bænda, er bíða tjón af þeim, kaflinn um þær girðingar, sem settar hafa verið upp á aðalvarnarlínum. Kafli um þetta efni hefur verið felldur inn í sérstakt frv., sem hér liggur nú fyrir og nokkuð hefur verið rætt. Ég skal ekki fara nánar út í það atriði hér, því um Það frv. verður sjálfsagt rætt frekar, svo mjög sem skoðanir manna virðast vera skiptar um það. Hitt leiðir af sjálfu sér, að ef það frv. nær ekki fram að ganga, þá yrði að gera þær breyt. á þessu frv., að bætt yrði úr því, sem ábótavant væri í þessu efni.
Fjórða atriðið, sem ég vildi minnast hér á, er í V. kafla þessa frv., sem heyrir undir almenn ákvæði. Þar er gert ráð fyrir því, og er það algert nýmæli í þessari löggjöf, að safnað sé árlega skýrslum um gang þessarar veiki og athugað gaumgæfilega, hvað reynslan færir okkur í skaut í því efni. Reynslan, sem þegar er fengin á þeim svæðum, sem veiki er lengst búin að ganga, virðist sýna það, að fjárstofnar í landinu séu mismunandi næmir fyrir þessari veiki, þannig að sumir fjárstofnar sýna meiri viðnámsþrótt og eru líklegri til að standa veikina betur af sér heldur en aðrir stofnar, sem nærri því þurrkast út. Ég vil skjóta því til hæstv. forseta, að ég er að ræða hér um eitthvert mesta alvöru- og áhyggjumál landbúnaðarins, sem yfir þjóðina hefur komið, og því nauðsynlegt, að þingmenn eigi þess kost að kynnast sem bezt gangi þessara mála, en nú er farið að verða þunnskipað á þingbekkjum, enda komið að þeim tíma, er venja er að ljúka fundi, og mundi því bezt hlýða að fresta umr.