23.05.1941
Efri deild: 66. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 923 í B-deild Alþingistíðinda. (2347)
128. mál, sauðfjársjúkdómar
Forsrh. (Hermann Jónasson) :
Út af fyrirspurn hv. frsm. skal ég taka fram, að það er mjög líklegt, við aukna útbreiðslu sauðfjárpestanna, að fleiri og fleiri héruð krefjist þess að eignast fulltrúa í nefnd þeirri, er fer með varnarstarfið. Vil ég segja það sem mitt álit, að betra sé að kveðja fróða menn til ráðuneytis en að fara að fjölga í n. upp í 6 eða 7. Mín skoðun er sú, að n. sé því þyngri í vöfum og seinvirkari sem hún er fjölmennari, og hefði gjarnan mátt fækka nm. úr 5 í 3.
Ég get því hiklaust svarað því, að ég er fús til að kveðja til menn frá þeim landshlutum, sem ekki eiga fulltrúa í n. og sérstaklega óska, að álit þeirra og till. sé n. kunnugt.
Ég get lýst því yfir, að meðan þessi stefna er höfð, mun ég kalla til menn af Austurlandi, þegar til meðferðar verða mál, sem snerta Austurland. Ég tel það betra en að fjölga mönnum í n., því að ef veikin breiðist út, þá yrði ekki hægt að hafa áfram þá skipun, sem til var ætlazt í upphafi. Ég er því fús til að kveðja til menn af Austurlandi, þegar þau mál verða til meðferðar.