05.06.1941
Neðri deild: 71. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 926 í B-deild Alþingistíðinda. (2365)

128. mál, sauðfjársjúkdómar

Bjarni Ásgeirsson:

Ég hef lýst við þessa umr. áður, að mér þætti eðlilegast, að þetta væri óbundið að l., vegna þess að það yrði að skoða sem framkvæmdaatriði, sem stjórn þessara mála hefði í sínum höndum að ákveða í hvert skipti. Ég hef aflað mér frekari upplýsinga síðan og orðið þess áskynja, að á undanförnum árum hefur þráfaldlega orðið að fyrirskipa svipaðan kostnað þeim, sem till. fjallar um, vegna flutnings fjár frá sýktu svæði yfir ósýkt, og get ég upplýst, að nefndin hefur í fæstum tilfellum tekið á ríkið þann kostnað, sem af því hefur leitt. Og ég er hræddur um, að ef þetta ákvæði væri bundið í l., mundi það draga þann dilk á eftir sér, að nokkuð víða á þessum sýktu svæðum gætu menn samkv. till. gert kostnaðarkröfu. Það stendur víða þannig á, bæði á mæðiveikisvæðum og garnaveikisvæðum, að menn taka á sig sérstakan kostnað, sums staðar flutning á fé sjóveg, sömuleiðis kostnað við bílflutning, og í þriðja lagi dýran vörð með fjárrekstrum, til þess. að koma í veg fyrir smitun frá þessum rekstrum á ósýktum svæðum. Ég hygg það mundi baka ríkissjóði mikinn kostnað, sem við sjáum ekki fyrir nú, ef þetta yrði samþ. inn í l. Ég verð þess vegna f. h. n. að leggja á móti því, að till. þessi verði samþ. Hins vegar hygg ég, að undir einstökum kringumstæðum gæti vel komið til greina að taka þátt í kostnaði, þar sem hann kynni að verða mjög mikill hjá einhverjum einstaklingum við að koma frá sér fé. En að greina á milli, hvenær það skuli gert eða ekki gert, álít ég rétt að leggja í vald framkvæmdanefndar.