06.06.1941
Sameinað þing: 24. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 198 í B-deild Alþingistíðinda. (238)

1. mál, fjárlög

*Forsrh. (Hermann Jónasson) :

Út af þessum fáu orðum, sem ég lét falla áðan, hefur komið fram tvennt, sem ég er neyddur til að svara. Hv. þm. Vestm. bar fram þá spurningu, hvort ríkisstj. gæti ekki komið sér saman um neitt þjóðþrifamál, eða hvað v æri eiginlega að þessum háu herrum.

Enn þá er rað nú svo í þessu landi, að fjárveitingavaldið er í höndum Alþingis, en ekki ríkisstj. Fjmrh. leggur fram sitt frv., en vinnubrögðin eru síðan eins og þm. er kunnugt. Það er fyrst og fremst undir fjvn. komið og ábyrgðartilfinningu þm., hvernig tekst um afgreiðslu fjárl., þótt ríkisstjórnin hafi þar hönd í bagga með, og eru því þessi ummæli hv. þm. vitanlega út í bláinn. En ég býst við því, að eins og nú er komið verði að afgreiða fjárl. svipað því, sem þau liggja fyrir, en endurskoða þau síðar, ef í nauðirnar rekur.

Vegna þessara ummæla hv. þm. Vestm. get ég ekki látið hjá líða að benda á, að fyrir liggur till. frá þessum hv. þm. um að bæta 1350 þús. kr. ofan á þann tekjuhalla, sem orðinn er á fjárl., til kaupa á hlutabréfum í Útvegsbanka Íslands.

Viðvíkjandi því atriði, sem hv. frsm. fjvn. minntist á, er ég sagði að ríkisstj. hefði komið á óvart, hvernig komið var, vil ég taka þetta fram :

Það er staðfest af hæstv. viðskmrh., að fjvn. kom til fundar við ríkisstj. fyrir hálfum mánuði síðan. Þá var tekjuhallinn skv. till. fjvn. orðinn 2 millj. kr. og auk þess lágu fyrir margar brtt. til hækkunar frá einstökum .þm. — Það er rétt, að fjvn. óskaði þá aðstoðar ríkisstj. til þess að koma í veg fyrir, að till, einstakra þm. yrðu samþ. Ég get ekki látið það óleiðrétt, að það kom fram á þeim fundi, að ríkisstj. kom mjög á óvart, að tekjuhlið fjárl. væri ekki varlega áætluð. Þetta kom fram í ræðu hæstv. viðskmrh., þegar þessar viðræður fóru fram við fjvn., og þar sem ríkisstjórnin hafði búizt við, að tekjuhliðin væri mjög varlega áætluð, áleit hún þennan tekjuhalla ekki eins alvarlegan og nú er komið á daginn.

Enda þótt till. einstakra þm. verði felldar, er tekjuhallinn enn rúmlega 2 millj. kr. Þessi halli er í raun og veru ekki óeðlilegur, því að mikið hefur verið að því gert á þessu þingi að fella niður tekjuliði, en auka útgjöldin. Það er vitanlega rétt hjá hæstv. viðskmrh., að þótt ríkisstj. hafi verið kunnugt um þetta fyrir hálfum mánuði, er ekki hægt að snúa við á síðustu dögum þingsins, og verður því við það að sitja, sem komið er. Það ríkti mikil bjartsýni í byrjun þessa þings, og enn virðist sú hugsun ríkjandi, að unnt sé að veita öllum allt, án þess að krefjast nokkurs í staðinn. Ég býst við, að við það verði að sitja, sem komið er, en það má búast við því, að taka verði fjárl. til endurskoðunar í byrjun næsta þings.

Það er rétt, sem hv. frsm. sagði, að þar sem fjvn. teygði sig eins langt og unnt var eftir till. þm., og jafnvel lengra en mögulegt var, hefði mátt vænta þess, að þm. bæru ekki fram till. til frekari hækkunar.

Ríkisstj. hefur gert sitt til að fá þm. til þess að draga till. sínar til baka, en hefur lítið orðið ágengt.

Um till. um sjómannaskólann er það að segja, að hún er ekki borin fram af ríkisstj. í heild. Það hefur verið rætt um hana í ríkisstj., en verið ágreiningur um hana. — Ég fæ ekki séð, að það hafi mikla þýðingu að bæta við útgjaldatill., þegar ekki er jafnframt séð fyrir tekjum til þess að standast þau útgjöld. Ég mun því greiða atkv. með þeirri till. með þeim skýra fyrirvara, að því aðeins verði ráðizt í þessar framkvæmdir, að til þess sé tekjuafgangur í fjárl. Ég tel ekki tiltækilegt að ráðast í þær framkvæmdir með lántökum, eins og nú er ástatt.

Þetta voru þau atriði, sem ég vildi minnast á.