06.06.1941
Sameinað þing: 24. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 201 í B-deild Alþingistíðinda. (240)
1. mál, fjárlög
Frsm. (Bjarni Bjarnason) :
Ég hef nú í mínum ræðum gagnvart fjárl., bæði nú og fyrr, reynt að tala ekki flokkslega (JJós: Hv. þm. byrjaði. á því að nefna sérstakan mann.), og ég mun því ekki gera það nú. Þess vegna mun ég ekki svara hv. þm. Vestm. með gagnsókn. Það var að gefnu tilefni, að ég nefndi hv. þm. Vestm., af því að hann talaði og viðhafði þau orð, sem ég tilfærði, en hann misskilur það, ef hann heldur, að ég álíti, að þær fjárveitingar, sem hans kjördæmi fær, séu of háar. Ég studdi till. og taldi hana réttmæta, en þessi ummæli hans til mín í þessu sambandi sýna einmitt og sanna, að þm. munu yfirleitt líta svo á, að fjvn. hafi ekki verið of rausnarleg í till. sínum til einstakra kjördæma eða einstakra þm., hvort sem till. eru í þágu allrar þjóðarinnar eða einstakra kjördæma. Það, sem ég tók fram, fékk ég staðfest með hans ummælum, þar sem hann var harðorður í minn garð og gat þess til, að ég mundi sjá eftir þessari fjárveitingu. — Það er einmitt þetta, sem ég hef haldið fram, og brtt., sem hér liggja fyrir, sanna, að einstakir þm. telja, að fjvn. hafi ekki verið of rausnaleg í till. sínum.
Ég mun svo láta þetta niður falla, án þess að hafa í frammi nokkra flokkslega áreitni, enda má benda þessum hv. þm. á, að ummæli mín í garð hæstv. forsrh. voru miklu harðari. Hann þarf því ekki að vera afbrýðisamur út af því, sem ég sagði.
Viðvíkjandi því, sem hæstv. forsrh. sagði um greiðsluhallann, þá vil ég taka fram, að hann er um 2,2 millj. kr. samkv. till. n., en þar af eru 400 þús. kr., sem teknar eru upp af n. vegna nýrra laga, þannig að greiðslurnar verða samkv. till. n. án tillits til nýrra laga 1,8 millj. kr., en það, sem n. tekur upp vegna nýrra laga, sést á þskj. 668, og augjóst er, að Alþingi á þar hlut að máli fyrst og fremst:
Ég vildi láta þess getið, til að fá það staðfest nákvæmlega, hvað greiðsluhallinn væri hár skv. till. n. án tillits til þeirra nýju laga, sem fyrir liggja. Greiðsluhalli samkv. till. n. er því sem næst sama upphæð og ætluð er á fjárlfrv. til afborgana á lánum. Verður það að teljast sæmilega varleg afgreiðsla, þar eð tekjurnar eru líka heldur lágt áætlaðar, ef sæmilega lætur í ári.