06.05.1941
Neðri deild: 52. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 942 í B-deild Alþingistíðinda. (2416)

94. mál, girðingar til varnar gegn útbreiðslu sauðfjársjúkdóma og fjárskipta

Frsm. (Bjarni Ásgeirsson) :

Það hafði af vangá fallið niður brtt. við 13. gr., 3. málsgr., úr till. landbn. Brtt. er um að herða heldur á ákvæðum um það, hve mikinn meiri hluta þurfi til samþykktar um fjárskipti. Samkv. frv. þurfa að vera með því 2/3 atkv. og 3/5 fjáreigenda að vera á fundi. N. vill hækka það upp í 3/4 atkv., og séu þá minnst 2/3 fjáreigenda á fundi. Vil ég leyfa mér að leggja fram þessa skrifl. brtt.

Ég skal ekki vera fjölorður um þær deilur, sem hér hafa orðið, en skal undirstrika orð hv. þm. Borgf. um það, að sá heggur, sem hlífa skyldi, þegar fulltrúar héraða, sem njóta gagnsins af vörnunum, veita málinu óbeina og beina mótspyrnu. Þeir, sem þekkja veikina, mundu glöðu geði hafa lagt á sig miklu þyngri byrðar til að forðast hana en þær, sem nú eru ætlaðar héruðunum, sem ekki hafa orðið fyrir henni. Við verðum að reyna að koma í veg fyrir útbreiðslu hennar, og við vitum, að til þess duga ekki nema girðingar og varzla. Það er alveg sama, hvað menn deila um hina fræðilegu hlið málsins, aðrar varnaraðferðir er ekki um að ræða. Hv. þm. A.-Sk. (JÍv) hafði þau orð um þetta, að hér væri verið að binda sýslufélögum og fjáreigendum svo þunga bagga, að nauðsyn væri að vísa málinu til sýslunefnda og sem flestra fjáreigenda til athugunar, þar til á næsta þingi: Þetta frv. er ekki eins háskalegt og hann virðist halda. Það er víst, að ekki verður flanað út í girðingar, nema full þörf sé. Og garnaveikin er komin svo ískyggilega nærri kjördæmi hv. þm. A.-Sk., að hann ætti að hugsa sig tvisvar um það að fylgja óþarfri frestun málsins. Þegar mál þetta lá fyrir síðasta búnaðarþingi og fékk einhuga afgreiðslu, voru þar að verki fulltrúar úr öllum héruðum og þ. á m. úr Austur-Skaftafellssýslu. Engum þeirra þótti heppilegt að slá málinu frá sér og á frest.

Ég skal fáu svara hv. þm. Ak. Ég ber mikla virðing fyrir sérþekkingu hans og deili ekki við hann um, hvaða nafn eigi að gefa veikinni; hún er og verður jafnsmitandi og skæð fyrir því, hvað hún heitir. En þá sé ég enga ástæðu til, að landbn. þurfi að taka málið til athugunar á nýjum grundvelli. Ekki fer ég heldur að deila við hv. 4. landsk. um hina nýju kosningalöggjöf, sem hann kallar. Hér er ekki aðeins að ræða um mikið fjárhagsmál fyrir fjáreigendur, heldur tilfinningamál. Og grundvöllur þess, að ráðstafanir komi að haldi, er, að þær hafi ekki mikinn hluta þeirra, sem skepnur eiga, á móti sér.