14.05.1941
Neðri deild: 59. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 951 í B-deild Alþingistíðinda. (2435)
94. mál, girðingar til varnar gegn útbreiðslu sauðfjársjúkdóma og fjárskipta
Helgi Jónasson:
Út af ræðu hæstv. forsrh. vil ég segja, að ég hef heyrt, að mæðiveikinefnd hafi ekki verið spurð ráða um samningu þessa frv. Ég hef talað við form. n., og hann sagði, að n. væri klofin. Hann taldi þetta frv. losaralega upp byggt og undirbúið og sagðist ekki geta fylgt því, og eins mun um fleiri menn í n., og það er fyllilega upplýst, að engin álitsgerð liggur fyrir frá mæðiveikinefnd um frv.