14.05.1941
Neðri deild: 59. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 951 í B-deild Alþingistíðinda. (2436)

94. mál, girðingar til varnar gegn útbreiðslu sauðfjársjúkdóma og fjárskipta

Forsrh. (Hermann Jónasson) :

Það, sem hv. þm. var að enda við að segja, er alrangt. Mæðiveikin hefur um þetta frv. fjallað, þó vera megi, að það sé ekki í nákvæmlega sama formi og einhverjir nm. hafa hugsað sér í upphafi. En hitt ætla ég að benda hv. Þingheimi á, að mæðiveikin kom til ráðuneytisins í vetur og krafðist þess, að efnið yrði tryggt í hinar nýju varnargirðingar strax. Og það var, eins og ég sagði áður, vegna shlj. álits n., m. a., sem ég brá við og tryggði girðingarefnið.