12.06.1941
Efri deild: 76. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 955 í B-deild Alþingistíðinda. (2470)
164. mál, vörumerki
Frsm. (Magnús Gíslason) :
Herra forseti! Frv. þetta er flutt samkvæmt ósk ríkisstj. af allshn. Nd. og er um breyt. á l. nr. 43 frá 13. nóv. 1903, um vörumerki.
Það er aðallega eitt ákvæði laganna, sem gert er ráð fyrir að breyta með þessu frv., ef það verður að lögum. Það er ákvæði 10. gr. um endurnýjun á vörumerkjum, en samkv. lögum þessum fellur niður sú vernd, sem í lögunum greinir, ef ekki er tilkynnt á 10 ára fresti, að þeir, sem þennan rétt hafa, óski að fá þau endurnýjuð.
Nú stendur svo á, eftir að póstsamgöngum við meginlandsríkin í Evrópu er lokið, að það er ókleift fyrir erlenda menn, sem hafa fengið hér skrásett vörumerki, að koma þessari tilkynningu um endurnýjun til landsins í tæka tíð, áður en út renna þau réttindi, sem þeir fengu skráð hér. Fyrir því er gert ráð fyrir því í frv., að á meðan á þessu stendur og þessir póstsamgönguerfiðleikar eru, þá skuli þessi vernd haldast, enda þótt tilkynning hafi ekki borizt vörumerkjaskrásetjara í tæka tíð.
Það er einnig gert ráð fyrir því, að ófriðnum loknum, að atvinnu- og samgöngumálaráðuneytið skuli auglýsa í Lögbirtingablaðinu ákveðinn frest til endurnýjunar. Ef hlutaðeigandi félög, firmu eða einstaklingar, sem hafa látið skrásetja þessi merki, hafa ekki tilkynnt, að þau vilji láta halda þessari vernd áfram, þá fellur hún úr gildi.
Þetta er m. ö. o. engin efnisbreyt. á lögunum, heldur aðeins bráðabirgðaráðstöfun, sem sett er vegna ástandsins, sem skapazt hefur af orsökum styrjaldarinnar. Það er ekki nema sanngjarnt og eðlilegt, að þessi varnagli sé sleginn, svo að þeir, sem engar sakir eiga á þessu, tapi ekki þeim rétti, sem þeir hefðu getað haldið við, ef tækifæri hefði verið til þess.
Allshn., sem hefur fjallað um málið, hefur orðið sammála um að leggja til, að frv. verði samþ. óbreytt.
Annars vildi ég nota tækifærið til þess að taka það fram, að ég tel vera fulla ástæðu til að taka þessa löggjöf í heild sinni til endurskoðunar. Þetta er þegar orðin nokkuð gömul löggjöf, og það er líklegt, að ýmsar ástæður, sem þá voru gildar fyrir því, að þessi lög voru sett, séu nú breyttar. Það væri því ráðlegt að bera þessa löggjöf saman við löggjöf annarra þjóða á þessu sviði, til þess að gera á henni breyt., sem ef til vill er nauðsynlegt að gera.
Það má m. a. benda á það, að gjöldin, sem tekin eru fyrir skrásetningu, eru of lág. Það er gert ráð fyrir 40 kr., en þar er innifalinn auglýsingakostnaður. Endurnýjun vörumerkis kostar aðeins 10 kr. Það er engin ástæða til annars en að greidd séu sómasamleg gjöld fyrir þetta.
Ég nefni þetta sem dæmi, en það eru mörg atriði, sem þurfa endurskoðunar með. Nefndin leggur samt til, að frv. verði samþ. óbreytt eins og það kemur frá hv. Nd.