26.05.1941
Efri deild: 68. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1035 í B-deild Alþingistíðinda. (2616)

157. mál, stríðstryggingafélag skipshafna

Félmrh. (Stefán Jóh. Stefánsson) :

Ég þarf ekki að hafa mörg orð um þetta, því að það hefur verið skýrt af hv. frsm. og hv. 2. landsk. — Ég vil aðeins geta þess, að stjórn stríðstryggingafélagsins hefur gert, í samráði við mig, brtt. við þessi 1., en það hefur dregizt að leggja þær fyrir hv. Alþ., og var það fyrst og fremst vegna þess, að ég var hræddur um, að það kynni að spilla samningum þeim, sem yfir hafa staðið milli útgerðarmanna og sjómanna. Svo kom fram í málinu það, sem hefur verið rakið hér í hv. d., að eigendum fiskiskipa þætti ófært að standa straum af iðgjöldunum. Svo var málið tekið upp að nýju, og ég get lýst því yfir, að ég er sammála þeim brtt., sem hv. n. hefur borið fram.

Nýlega hefur hæstaréttardómur fallið um greiðslu bóta, og af forsendum dómsins mátti ráða, að ef slys yrði af ófriðarástæðum, þá skyldu bætur koma, en að öðrum kosti niður falla. Þess vegna tel ég betra að lækka bætur heldur en að menn fái annaðhvort allt eða ekkert.

Í Nd. er til umr. breyt. á 1. nr. 66 7. maí 1940, um stríðsslysatryggingu sjómanna, að lækka iðgjöldin, og gerði það þá útgerðarmönnum auðveldara að tryggja sjómenn, og trygginguna um leið víðtækari, þ. e. til hinna smærri fiskiskipa, og réttur sjómanna yrði betur tryggður en áður.