19.05.1941
Efri deild: 63. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1059 í B-deild Alþingistíðinda. (2683)
136. mál, ófriðartryggingar
Atvmrh. (Ólafur Thors) :
Út af framsöguræðu hv. frsm. allshn. þykir mér ekki ástæða að gera neina aths. aðra en þá einu, er varðar 10. brtt. Hv. frsm. telur, að n. að athuguðu máli hafi komizt að þeirri niðurstöðu, að með hliðsjón af því, að till, sú, sem orðuð er frá n. hendi, heimilar, að fullar bætur séu greiddar tafarlaust, þá beri ekki svo mikið á milli þess, sem n. leggur til, og hins, sem stj. leggur til, að það þurfi í sjálfu sér að valda ágreiningi. Ég get lýst yfir, að ég er honum sammála um það, að þetta sé hvergi nærri svo mikið höfuðatriði, að nokkuð þurfi að velta á því um ágæti frv. eftir að það er lögfest. En ég vík ekki frá hinu, að ég hef þá skoðun, að sú till., sem ríkisstj. hefur gert, sé eðlilegri. Hv. frsm. benti á það alveg réttilega, að það er náttúrlega full ástæða til að halda, að banki, sem lánar út á svona vörubirgðir, muni líka lána út á kröfur, sem aðili eignast við tjón; og mér þykir mjög sennilegt, að það þætti góð baktrygging gegn lánveitingu. Og þar sem nú aðili á að fá 5% vexti af þessum kröfum sínum, þar til þær eru greiddar, eru þær í sjálfu sér góð eign. Af þessu leiðir, að tafarlaus greiðsla er ekki höfuðatriði fyrir aðila. En ástæðan til þess, að stj. lagði til þessa leið, er sú, að þar sem Ófriðartryggingin á hvort sem er að gjalda vexti af þessu, ef kröfur eru ekki greiddar, og þar sem ætla má, að almenna reglan verði sú, að aðilar þurfi að fá peningana til þess að kaupa nýjar vörubirgðir fyrir þær, sem farizt hafa, þá þótti okkur réttara að láta þetta vera skýlausan kröfurétt fyrir alla upphæðina, heldur en að fara þá leið, sem n. hefur farið og er í samræmi við till. ríkisstj. um skaðabótagreiðslur varðandi II. og III. kafla. Ekki sízt þegar maður athugar þá mildi, ef svo má segja, sem n. hefur sýnt gagnvart kröfuhafa, með því að opna honum heimild til þess að fá bætur greiddar þegar í meira mæli en annars er gert ráð fyrir, ef hann getur fært sönnur á, að hann annars bíði mikið tjón. Og ef maður athugar þau vandkvæði fyrir Ófriðartrygginguna að leggja rannsókn á það, um hversu óyggjandi nauðsyn sé að ræða, þá sé eðlilegra að fara þá leið, sem ríkisstj. lagði til. En ég legg ekki kapp á þetta, og það er að vísu ekki aðalatriði um ágæti þessa máls.
Út af fyrirspurn hv. 1. þm. N.-M. um, hvernig
stjórnin ætli sér að skipta landinu í áhættusvæði, eða hve há iðgjöld verði heimtuð á einstökum áhættusvæðum, þá er ég ekki við því búinn að gefa upplýsingar um það, þar sem ríkisstj. hefur ekki enn gert sér fulla grein fyrir því, enda orkar tvímælis, hvaða reglum beri að fylgja.
Eins og hv. frsm. vék að, þá er eitt sjónarmiðið það, að þrátt fyrir það, þótt áhættan sé mismunandi á landinu, geti verið ástæða til þess að hafa aðeins eitt iðgjald, þar sem telja megi, að það tjón, sem kynni að verða í Reykjavík, sé alþjóðartjón og því réttlátt, að það sé bætt af öllum landsmönnum jafnt. En hitt sjónarmiðið hefur orðið ofan á, að af því telja megi, að áhættan sé misjöfn, beri að hafa iðgjöldin mismunandi. Að svo komnu máli get ég ekki upplýst, hvernig sú skipting kann að verða.