19.05.1941
Efri deild: 63. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1060 í B-deild Alþingistíðinda. (2686)
136. mál, ófriðartryggingar
Frsm. (Magnús Gíslason) :
Út af ummælum hv. 1. þm. N.-M. vil ég geta þess, að n. hafði til athugunar, hvort setja ætti nánari fyrirmæli um brunabótavirðingu, en komst að þeirri niðurstöðu, að það væri ekki gerlegt. Hvað snertir brunabótavirðingu á húsum og fasteignum er mönnum í sjálfsvald sett, hvort þeir vilja hækka brunabótamatið eða ekki. Það, sem tryggt er í Brunabótafélagi Íslands, er hægt að fá hækkað um 60% eftir heimild, sem félagið hefur gefið, en hinir, sem ekki hafa tryggt þar, verða að fá framkvæmt sérstakt mat á fasteignum sínum, ef þeir vilja fá brunabótavirðinguna hækkaða. Virðist því réttara, þar sem iðgjald til Ófriðartryggingarinnar er allhátt, að mönnum sé í sjálfsvald sett, hvort þeir vilja láta meta fasteignirnar upp eða ekki.
Brtt. hv. 1. þm. N.-M. held ég, að sé ekki til bóta. Það er mjög þýðingarmikið fyrir Ófriðartrygginguna, að tjón sé tilkynnt sem fyrst, svo að hún gefi gert, sér grein fyrir þeim kröfum, sem á henni hvíla á hverjum tíma. Þó svo fari, að eigandi tilkynni tjón ekki fyrr en eftir að frestur er útrunninn, missir hann ekki rétt til bóta fyrr en eftir 3 mánuði. Það væri aðeins hægt að sekta hann fyrir dráttinn.
Þá vil ég víkja fáum orðum að því, sem hæstv. atvmrh. sagði, en vísa að öðru leyti til þeirra raka, er ég bar fram við framsögu, að það gæti orðið mjög erfitt fyrir Ófriðartrygginguna að bæta mikið tjón á þeim tíma, þegar hún hefur ekkert handbært fé til þess að greiða með. Og ég vil leggja áherzlu á, að ekki sé nauðsynlegt að bæta innlendar vörubirgðir undireins. Við skulum taka sem dæmi, að mjög mikið af saltfiski eyðileggist, þá er ekki ástæða til annars en að láta þau lán, sem á þeim birgðum hvíla, standa áfram í bönkunum, því að skv. 22. gr. er bankinn skyldur til að veita lánin áfram. Það er engin ástæða til að bæta innlendar vörubirgðir að fullu undireins, aðeins verður að bæta atvinnurekandanum þær að svo miklu leyti, að hann geti haldið atvinnurekstrinum áfram.
Hv. 1. þm. Reykv. (MJ) minntist á, að orðalagi 1. gr. þyrfti að breyta. N. fannst ekki ástæða til að gera neina brtt. þar að lútandi, enda sé ég ekki í fljótu bragði, að það geti valdið misskilningi. Það er ekki hægt að fá tryggt hér á landi annað en skip gegn ófriðartjóni. Allt annað fæst ekki tryggt. Það, sem átt er við í 1. gr. með þessum orðum : „sem ekki er vátryggt á annan hátt eða fæst bætt á öðrum vettvangi“, er, að ef annar hvor styrjaldaraðilinn yrði að ófriðnum loknum skyldaður til þess að endurgreiða tjón af völdum ófriðarins, er það annar vettvangur, og eignast þá Ófriðartryggingin þær kröfur til bóta.
N. vildi ekki fallast á, að rétt væri að hafa sama frádrátt fyrir lausafé og vörubirgðir, og er ástæðan sú, sem talin er í nál., að það getur verið mjög erfitt fyrir Ófriðartrygginguna að mynda sér skoðun um það, hvers virði það er í raun og veru, sem ferst af húsmunum manna og öðru sambærilegu lausafé. Það væri því ekki nema eðlilegt, að Ófriðartryggingin yrði fyrir skakkaföllum af þeirri ástæðu. Til þess að synda fyrir það er þetta ákvæði sett í frv. — Hvað það snertir, að menn eigi lausafé svo tugum eða jafnvel hundrað þús. kr. skiptir, þá eru ekki mörg dæmi slíks hér á landi. Og af því að hv. 1. þm. Reykv. nefndi lúxusbíla í því sambandi, vil ég benda á, að þeir koma undir ákvæðið um vélar og tæki, en eru ekki taldir sem lausafé. — Það gæti auðvitað komið það tilfelli, að maður ætti mjög verðmætt bókasafn, og væri þá ef til vill ástæða til að bæta það tjón á sama hátt og ýmsar vörur. Viðvíkjandi þeirri breyt., sem n. leggur til, að gerð verði á 22. gr., minntist hv., 1. þm. Reykv. á, að erfitt yrði að færa sönnur á, að eigandi hefði orðið fyrir stórfelldu fjárhagslegu tjóni. Það verður að vera undir mati Ófriðartryggingarinnar komið í hverju tilfelli, hvað hún gerir strangar kröfur til sannana í því efni.