14.06.1941
Neðri deild: 80. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1066 í B-deild Alþingistíðinda. (2706)

136. mál, ófriðartryggingar

Atvmrh. (Ólafur Thors):

Við umr. um þetta mál í Ed. skýrði ég frá því, hvernig það væri undirbúið innan ríkisstj., og er nokkur grein gerð fyrir því í grg. Ég held, að ég megi fullyrða það, að þetta ákvæði, sem hér hefur verið rætt, sé sett inn í frv. samkv. till. þeirra sérfróðustu manna, sem ríkisstj. átti kost á að eiga tal við um þetta mál, og vil ég þar nefna Ásgeir Þorsteinsson og Brynjólf Stefánsson forstjóra, og í rauninni þriðja manninn, Jón Blöndal. Um aðra sér fræðinga í þessum efnum er mér ekki kunnugt. Ég viðurkenni, að það sé rétt, sem hv. þm. Borgf. sagði, að það er engan veginn alveg sama, hvort 21. gr. kemur til framkvæmda strax eða síðar. En hins vegar er það alveg rétt hjá hv. frsm. fjhn., að það er í báðum þessum gr. gert að skilyrði, að fé verði veitt til þessa í fjárl., a. m. k. er hér um ábyrgð að ræða. Þeir sérfræðingar, sem ég hef talað við, hafa talið það alveg nauðsynlegt, að þessi grundvöllur væri lagður undir fjáröflun samkv. ákvæðum þessa frv.

Ég skal, áður en fundur kemur saman aftur að loknu matarhléi, vera búinn að fullvissa mig um það, hvort þessir tryggingarfróðu menn telja verjandi að nema í burtu þessi ákvæði, sem hér er deilt um.