13.06.1941
Neðri deild: 78. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1166 í B-deild Alþingistíðinda. (2751)
168. mál, ráðstafanir og tekjuöflunar vegna dýrtíðar og erfiðleika atvinnuveganna
Sigurður Kristjánsson:
Aðeins örstutt athugasemd við eitt atriði í ræðu hv. 1. þm. Rang. Hann sagði, að Bretar hefðu ætlazt til, að sjóður sá, sem þeir lögðu fram til verðuppbótar á vörur, sem markaðstöp hefðu orðið á erlendis, skyldi aðallega ganga til að bæta upp verð á landbúnaðarafurðum. En ég tel, að þeir hafi ekkert sagt um þetta. Útgerðin tapaði miklu á því ári, sem um er að ræða, og missti mjög markaði. Einkum töpuðust mjög markaðir fyrir síld. Sú síld, sem seldist ekki þá, hefur síðan selzt seint og illa. Einnig tapaðist markaður fyrir aðrar sjávarafurðir, svo sem hrogn og sundmaga. Það getur því ekki átt sér stað, að þessa verðuppbót eigi að einskorða við landbúnaðarafurðir einar saman.