14.06.1941
Neðri deild: 80. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1179 í B-deild Alþingistíðinda. (2769)
168. mál, ráðstafanir og tekjuöflunar vegna dýrtíðar og erfiðleika atvinnuveganna
Forseti (JörB) :
Þar sem málið hefur verið rætt allýtarlega og ég hygg, að fram hafi komið flest sjónarmið, er máli skipta, og með því að fyrir dyrum stendur að slíta þingi á öðrum virkum degi í næstu viku, þá sé ég mér ekki annað fært, sakir þess hve naumur tími er fyrir Ed. til að afgr. málið, en að takmarka ræðutímann, svo að takast megi að koma málinu til Ed. nú í dag. En af þeim tíma, sem d. hefur til umráða, eru ekki eftir nema nokkrar mínútur. Ég mun því takmarka ræðutíma hvers þm. við tvær mínútur.