14.06.1941
Neðri deild: 80. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1180 í B-deild Alþingistíðinda. (2772)
168. mál, ráðstafanir og tekjuöflunar vegna dýrtíðar og erfiðleika atvinnuveganna
Viðskmrh. (Eysteinn Jónsson) :
Það voru fyrst nokkur orð út af ræðu hv. þm. Borgf. Hann kvartaði yfir þeim svörum, sem hann hefði fengið, þegar hann óskaði eftir, að meðferð málsins yrði frestað. Ég skýrði honum frá því, að ríkisstj. teldi nauðsynlegt, að 2. umr. yrði lokið í gærkvöldi. Vitanlega stóð hv. þm. opið að taka till. sína aftur til 3. umr., ef hann hefði viljað láta athuga málið sérstaklega áfram. Ég kannast ekki við, að ég hafi staðið í vegi fyrir því, að menn gætu komið með öll þau úrræði, sem þeir töldu hugsanleg, í tillöguformi.
Út af því, sem hv. þm. Borgf. sagði um það, að honum væri með þessu illa launuð góð þjónusta við þjóðstjórnina, þá vil ég segja það, að það hefur á engan hátt verið vanþakkað það fylgi, sem þessi hv. þm. hefur látið þjóðstj. í té. Hitt vil ég og segja, að það getur vel verið, að fleirum hv. þm. hefði á stundum þótt ástæða til að kvarta yfir ýmsu í samvinnunni um þjóðstjórnina, þótt þeir létu kyrrt liggja.
Út af ræðu hæstv. atvmrh., sem gaf mér tilefni til að taka til máls, vil ég segja þetta: Mér virtist á hans ræðu, að honum hefði skilizt á mér, að ég teldi þessa brtt. ekki draga úr frv. Þetta er þvert á móti. Ég álít brtt. í öllum atriðum skerðingu á frv. Hitt er annað mál, að Framsfl. hefur ákveðið að halda áfram samstarfinu í stj., þótt svo færi, að þessi breyt. væri gerð.