16.06.1941
Efri deild: 82. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1189 í B-deild Alþingistíðinda. (2785)
168. mál, ráðstafanir og tekjuöflunar vegna dýrtíðar og erfiðleika atvinnuveganna
Magnús Jónsson:
Ef þetta mál hefði verið tekið fyrir á öðrum tíma þings og verulegt tóm verið til að veita því þá meðferð, sem svo stóru þjóðmáli hæfir, hefði ég sjálfsagt flutt um það dálítið inngangserindi frá almennu sjónarmiði. Hæstv. forseti hét því við fyrri meðferð frv. hér, að það skyldi leyft við þessa umræðu, en þó vil ég ekki neyta þess réttar, eins og á stendur, heldur ræða aðeins um það, er snertir brtt. mínar.
Það er óviðkunnanlegt, að þegar Alþ. er búið að sitja lengur en nokkurn tíma áður, skuli þetta stórmál, sem við eigum líklega eftir að verða varir við dunurnar af eftir 10 ár, vera knúið gegnum þingið án undirbúnings og án þess, að tími vinnist til að tala um það. Það er alveg dæmalaust, hver flaustursmíð frv, er, og verða nefnd næg dæmi þess áður en lýkur. Eiginlega er aðeins um það eitt rætt, að leyfa ríkisstj. að krefja af þjóðinni óhemjumikla peninga og verja þeim svo til einhvers þarflegs, sem henni þóknast. Þótt það sé rétt hjá hv. frsm., að n. mæli með því að samþ. frv., fylgir því ekki mikil áherzla af minni hálfu. Ég trúi ekki, að verðlagið mundi hækka upp úr öllu viti héðan af, þótt ekkert væri að gert. Ég held að frumorsök verðbólgunnar sé algerlega röng skráning krónunnar. Ég gæti vel trúað, að verðlagið stöðvaðist, þegar það hefur náð vissu hámarki, þó að vitanlega komi þar fleiri ástaeður til greina en gengið. Ef í staðinn fyrir krónu er tekin upp önnur mynt miklu verðminni, skapar það óheilbrigða verðbólgu, en það er reynsla, að sú þróun stöðvast, er frá líður. Þess vegna er ég ekki svo ginnkeyptur fyrir þessu, að ég vilji samþ. þar svo að segja hvað sem er. Ég er því samþykkur, að reynt sé að vinna móti því óheillaverki, sem við vorum neyddir til í samningum við Englendinga, að skrá krónuna rangt. Með brtt. vildi ég vinna að því. Það var mjög göfugmannlegt af hv. frsm. að bjóðast til að vera með frv. óbreyttu, ef við vildum hinir sætta okkur við það án breyt. En ég geri samþykkt aðaltill. minnar að skilyrði fyrir því, að ég geti orðið með frv. Ég tel, að frv. hafi verið lagfært í Nd. Það var ekki aðeins gert af hlífð við almenning og við sóma Alþ. að samþ. ekki með þessu frv. ný skattal. þvert ofan í þau, sem þingið var nýlega búið að afgreiða, heldur tel ég, að það hafi verið gert til að firra ríkisstj. þeirri freistingu að fara ógætilega af stað í framkvæmd þessarar löggjafar. Henni voru heimilaðar of ótakmarkaðar álögur til þess að hún þyrfti að hugsa um að sjá fótum sínum forráð fjárhagslega. En meðan 1. gr. frv. er látin óbreytt, er það raunar bitamunur en ekki fjár, hvort frv. er fullkomnara nú en í upphafi eða skattaálagningarheimildin takmarkaðri en var. Ef ríkisstj. notar heimild 1. gr. ógætilega, hleðst kostnaðurinn upp, og nú eða síðar verður að ná honum upp með sköttum. Þá gagnar lítið sú lagfæring, sem Nd. hefur gert. 1. brtt. mín er umorðun á 1. gr. Þar er tvennt, sem ég vil takmarka, verkefni frv. og um leið hinn takmarkalausa kostnað, sem af víðfeðmi þess getur leitt. Mér og öðrum þm. er nokkur vorkunn, þótt okkur blöskri, þegar 1. gr. telur ráðstafanirnar eiga að ná „til viðbúnaðar gegn þeim erfiðleikum atvinnuveganna, er stafa af styrjaldarástandinu, til þess að minnka verðbólguna innan lands og draga þannig úr hækkun framfærslukostnaðar, kaupgjalds og framleiðslukostnaðar og til annarra ráðstafana, sem óhjákvæmilega nauðsynlegar kynnu að þykja af styrjaldarástæðum“. Ég hefði gaman af að vita, hvað það er í þjóðfélaginu, sem ekki má láta þessi ákvæði ná til. Hvað er það, sem ófriðurinn hefur ekki áhrif á? Hann rekst svo allt venjulegt líf hvers einstaklings í landinu, að .það getur gefið ríkisstj. tilefni til að gera í nafni þessarar löggjafar næstum hvað, sem henni dettur í hug. Viðbótin, sem Nd. samþ. við 1. gr., er ekki sem verst orðuð, en hún endurtekur allt efni fyrri hlutans, svo að það er ósamboðið virðingu Alþingis að samþ. slíka grautargerð. Þar er bætt við, — með leyfi hæstv. forseta —: „Ríkisstjórnin skal verja fé því, sem aflað er samkv. l. þessum, til þess að koma í veg fyrir, svo sem unnt er, að verðlag á innlendum og erlendum nauðsynjavörum hækki til neytenda frá því, sem nú er, og til að styðja þá framleiðendur, sem af styrjaldarástæðum eru neyddir til að selja vöru sína óeðlilega lágu verði, allt að undangenginni athugun á þeim ástæðum, sem fyrir hendi eru: Það hefði verið betra, ef hv. Nd. hefði látið þessa málsgr. nægja, en fellt upphaflegu greinina niður. Nú er þeirri þannig ruglað saman, að úr endurtekningunum verður ekkert mannamál, bara hreinasta fuglamál. Greinin er alveg dæmalaus í íslenzkri löggjöf.
Það er enn of óljóst, til hvers ríkisstj. þóttist þurfa nýjar álögur, sem næmu 12, 14, 15 eða 16 milljónum króna. Rætt hefur verið um, að það gengi að nokkru leyti til að styðja atvinnuvegi, sem bera sig illa, greiða t. d. uppbætur á kjöt, sem selt er úr landi. Mér finnst það ákaflega sannsýnilegt, þótt erfitt sé að meta þarfir allra aðila rétt og skipta sanngjarnlega. En svo er t. d. minnzt á uppbót á útfluttar sjávarafurðir, segjum síld. Þá fer skörin að færast upp í bekkinn. Ef einhverjar af mestu útflutningsvörum okkar eiga að njóta stórfelldra uppbóta, hvar á þá að nema staðar? Á þá að segja við menn: Blessaður, framleiddu bara eitthvað, hvort sem það borgar sig eða ekki. Ríkið ber hallann, ef það borgar sig ekki. — Þá held ég ekki væri verra, að þeir leituðu arðvænni atvinnu, jafnvel færu í Bretavinnu.
Ég hef raunar alltaf heyrt í sambandi við þetta frv., að það væri flutt til þess að koma í veg fyrir aukning dýrtíðarinnar. Það verkefni er nógu stórt. Og þess vegna er það, að ég hef borið fram þessa brtt., þar sem í 1. gr. er eingöngu miðað við það, að ríkisstj. beri að gera ráðstafanir gegn því, að dýrtíð og framfærslukostnaður í landinu aukist. Með því hefur málið fengið alveg ákveðna stefnu, þar sem það er ákveðið verk, sem til er tekið, að verið sé að vinna. Ég vil t. d. alls ekki draga hér inn í þetta mál ýmis önnur mál, sem mér virðast vera dregin hér inn í t. d. mjólkurmálið og erfiðleikar bænda í Gullbringu- og Kjósarsýslu og yfirleitt í nágrenni Reykjavíkur í sambandi við mjólkursölu, rétt eins og sú vandræðasaga hefði byrjað nú með stríðinu og verðhækkuninni. En það mál hefur verið margra ára vandræðamál, og ég álit, að það þurfi að taka það alveg ákveðnum tökum í alveg sérstöku frv., sem samþ. væri sem l. Ég spáði því síðast þegar breyt. var gerð á mjólkurl., að með þeim breyt., sem þá voru gerðar, væri stefnt út í ófæru, vegna þess að þá áttu menn að fá sama verð, að frádregnum kostnaði, fyrir mjólkina innan verðlagssvæðisins, hvort sem mjólkin komst í meira eða minna verð. Ég spáði því þá, að allir bændur á þessum h. u. b. einum þriðja hluta landsins eða meira færu bara allir að framleiða mjólk. Því að það er góður atvinnuvegur, ef menn fá neyzlumjólkurverð fyrir mjólkina, að frádregnum einhverjum kostnaði; þá varðaði þá, sem framleiddu hana, ekki um, fyrir hvað hún seldist. Ég spáði því, sem sagt, að mjólkurframleiðslan ykist. En það var þá ekki gert mikið úr því. En hvað skeður? Nú er mjólkurframleiðslan þrefalt mjólkurmagn á við það, sem hægt er að pumpa í neytendur. Og allar ráðstafanir, sem gerðar hafa verið um þetta mál, útþynnast svo hroðalega, að neytendur verða að borga stórfé fyrir mjólkina; en t. d. bændur hér í nágrenni Reykjavíkur fá ekki nema einn þriðja hluta þess verðs fyrir sína mjólk. Þetta álít ég, að þurfi að taka fyrir til rækilegrar athugunar og breyt. í sérstakri löggjöf.
Eins hefur verið blandað saman við þetta mál, alveg að ég tel að ástæðulausu, erfiðleikum bænda vegna fjárpestarinnar. Það má vel, vera,
að þessir aumingja menn, sem hafa nú misst fé sitt af völdum þeirrar pestar, þegar þeir sjá peningana rúlla í milljónatali, hugsi sem svo, að þeir ættu að geta fengið einhvern pening. En um þetta efni er til ýtarleg löggjöf, sem ég veit ekki betur en að hafi alveg verið endurskoðuð af hæstv. Alþ. Og ég álít, að við eigum, ef við viljum gera bændum eitthvað betra til um þetta, að athuga þá löggjöf alveg út af fyrir sig, en ekki að vera að blanda henni hér saman við, því að hún er alveg óviðkomandi þessu dýrtíðarmáli. Og það eru sjálfsagt fleiri, sem ætlað er að koma inn í þetta.
Ég hef þess vegna stungið upp á því, sem sagt, að 1. gr. frv. sé skýrt um það, að verkefnið, sem eigi að sinna með þessum ráðstöfunum, sé takmarkað við það að gera ráðstafanir gegn því, að framleiðslukostnaður í landinu aukist.
Ég er ekki ákaflega ginnkeyptur með þessu máli. En ég vil vera með því, úr því að ríkisstj. og ýmsir aðrir óska eftir því, en óska þessara breyt., sem ég hef tekið fram, á frv. En ég er ákaflega hræddur um það, að vegna þessa máls verði stórkostlegir örðugleikar. Ég veit náttúrlega ekki, hve vísdómsleg ráð menn finna út. Vonandi er, að forsjónin gefi hæstv. ríkisstj. mikinn vísdóm, þegar hún fer að gera sínar ráðstafanir. En ég sé ekki annað en að öllum eðlilegum grundvelli undir verðmyndun sé kippt burt með þeim ráðstöfunum, sem telja má, að hér sé stefnt að. Hingað til hafa menn fengið ákveðið verð fyrir vöru sína, eins og þeir hafa treyst sér til að selja vöruna fyrir, og það, sem takmarkar verðhækkunina, t. d. á mjólk, svo maður taki einhvern ákveðinn hlut, er það, að þegar hún hækkar, draga menn úr neyzlu hennar og reyna að finna eitthvað annað til að kaupa í staðinn fyrir hana, sem þeir telja hagkvæmara að kaupa. En ef menn vilja hækka mjólkurverðið til framleiðenda án þess að mjólkin hækki til neytendanna og einhver góður aðili borgar mismuninn, þá er horfinn allur eðlilegur grundvöllur undan verðlagsákvörðun á þessari vöru. Ef neytendur borga t. d. 70 aura fyrir lítrann af mjólk, en hún er raunverulega hækkuð upp í krónu eða jafnvel kr. 1.50, þegar talið er verð til framleiðenda og kostnaður, og þegar verðið er komið upp í t. d. kr. 1.50, þá verður farið að þyngjast undir fæti. Hvernig ætlar hæstv. ríkisstj. að finna grundvöll um þetta, þegar því er gersamlega neitað, að sá aðili, sem á að borga vöruna, eigi að fá að ráða neinu um verðið? Ég sé þar ljón á veginum. En í trausti til ríkisstj., og kannske mínu oftrausti til hæstv. stj. um að hún finni leiðir og að hún beiti áhrifum sínum til þess að þetta keyri ekki alveg fram úr hófi, vil ég vera með málinu.
Þetta er þá annað höfuðmarkmiðið með minni brtt., að takmarka verksviðið. Hitt höfuðmarkmiðið er að takmarka fjárhæðina við 5 millj. kr. Ég álít, að það sé ósamboðið hæstv. Alþ. að gefa svona heimildir öðruvísi en að vita eitthvað, hvað það er að gera. Og 5 millj. kr. hafa nú stundum þótt skildingur, þegar eitthvað hefur átt að framkvæma.
Ég vil benda á það í þessu sambandi, að þegar búið er að takmarka tilgang frv. við það aðráða verðlagi í landinu, þá er margt, sem ríkisstj. getur gert án þess að kosta nokkru til. Hún getur barizt á móti verðhækkun með ýmsu móti, sem ekkert kostar annað en fyrirhöfn og ráðsnilld. Hún getur skert álagningu á erlendar vörur, eða a. m. k. hert á framkvæmdum þannig, að sem bezt sé tryggt, að sú vara hækki ekki. Hún getur með áhrifum sínum með því fullkomna valdi, sem hún í raun og veru hefur til þess (ef hún hefur krafta í kögglum) að hafa áhrif á innlenda verðlagið, ef hún reynir til þess ýtrasta að láta það ekki fara upp úr því, sem eftir nákvæma athugun verður að telja rétt og sanngjarnt. Hún getur sjálfsagt líka eitthvað unnið að því að lækka verðlagið með því að lækka farmgjöld að einhverju leyti. Og það er gert ráð fyrir því í frv. að lækka tolla, sem mundi stuðla að lækkun dýrtíðarinnar, en það eru náttlúrlega óbein útgjöld fyrir ríkissjóð, og vil ég því ekki nefna það með þessu. Og svo getur hún á ýmsan hátt haft áhrif með peningapólitík landsins, sem yfirleitt hefur í öðrum löndum þótt það eina, sem ætti að grípa til, þegar verðþensla hefur verið í einhverju landi, og hefur það verið framkvæmt þannig að taka peningana að nokkrum hluta úr umferð og kreppa þannig að peningamarkaðinum eins og hægt er . Og till. hefur komið fram um það að taka nokkuð af tekjum þeirra manna, sem miklar hafa tekjur, og loka þær inni hreint og beint. Þess konar peningapólitík gæti ég trúað, að yrði miklu árangursmeiri heldur en bara að taka pening af einum aðila og fá öðrum hann, sem ég held, að verði svo gagnslítið, því að með því halda peningarnir áfram að vera í umferð. Að loka peningana þannig inni væri þó eins og að rífa svolítið gat á þakið til þess að hleypa sólskini inn, en bera það ekki alltaf inn í fötum.
En fyrir utan allar þessar aðferðir, sem hæstv. ríkisstj. getur haft, — og það herðir á henni að nota þær, ef hæstv. Alþ. lætur þann vilja sinn í ljós, að hún eigi að hafa þær —, þá hefur hæstv. ríkisstj. handa á milli 5 millj. kr., ef hún þarf að kosta einhverju til. Og það eru ekki litlir peningar. Og ef hæstv. ríkisstj. fer að framkvæma þetta í sumar og fram á haust og verður þá búin að gera sínar línur skýrar, sem ég býst við, að hún geti þá verið búin að, en sér þá, að þetta fé dugar ekki, þá getur hún kallað saman þing eða látið frekari framkvæmdir bíða þangað til þing kemur saman í febrúar næst, og það þing getur lagt fram skýrar till. í málinu. Ég skyldi vera miklu fúsari til að binda ekki tillag til þessara framkvæmda við vissan krónufjölda, ef línurnar væru skýrari um verksvið það, sem hæstv. ríkisstj. eftir þessu frv. á að hafa til að framkvæma þessar ráðstafanir, væri ekki svona óákveðið. En ef maður veit ekki, eftir hvaða línum á að fara eða hve margar krónur eiga að fara til þessa, þá get ég ekki eins fúslega verið með þessu.
Það var nokkuð talað um það í mínum flokki, þegar þetta mál var á döfinni, að fresta Alþ. um tíma og setja fagmenn og stofnanir í að rannsaka þetta mál til þess að afla upplýsinga til að starfa eftir í málinu, og kalla svo þing saman aftur til þess að ráða málinu til lykta. Ég var með þessu, því að ég taldi ákaflega erfitt að komast niður á heppilega lausn málsins, meðan ekkert væri rannsakað í því. Ég tel, að ég hafi þar með till. minni, ef samþ. hefði verið, komið með heppilegustu lausn málsins. Ríkisstj. hefði svo, eftir að hafa prófað þær ráðstafanir, sem hún hyggst að gera með þessum 5 millj. kr., getað kallað saman þing í október, nóvember eða desember eða yfirleitt á hverjum þeim tíma, sem hún hefði álitið þörf á að tala við hv. þm. um frekari heimildir og aðgerðir í málinu. Ég fyrir mitt leyti er sannfærður um það, að málið hefði með þessu móti fengið heilbrigðari lausn heldur en með því, sem hér í frv. er stefnt að, og þetta hefði aldrei getað skaðað neitt a. m. k. Ég efast um, að þær hendur, sem nú eru útréttar eftir hjálp, kannske bara í huganum, færu vonsviknar til baka aftur, þótt að mínu ráði hefði verið hnigið, en ég mundi ekkert hafa harmað það, þótt svo hefði farið í bili. Því að við vitum það, að ef við eigum að óttast hina miklu dýrtíð, þá þurfum við ekkert síður að óttast hana, þó að við gerum ákaflega miklar ráðstafanir af þessu tagi, sem í frv. er gert ráð fyrir. Og ég er ákaflega hræddur um það, að eins og menn álíta dýrtíðina þungan bagga, þegar stríðinu er lokið, eins muni um allar þessar ráðstafanir, ef gerðar verða, sem í frv. greinir, verða erfiðleikar á að koma þeim af aftur. Skal ég svo láta þetta nægja um brtt. við 1. gr.
Hinar brtt. eru svo í raun og veru ekki annað en afleiðingar af þessari 1. brtt. Það nær náttúrlega ekki nokkurri átt, að samtímis því, að heimild er ákveðin um þessar 5 millj., þá sé farið að leggja á svo eða svo margra millj. kr. útflutningsgjald. Ég vil nú láta í ljós nokkurn efa um það, að ríkissjóður muni vera fær um að snara út þessum 5 millj. kr., sem honum ber að svara út eftir frv. óbreyttu, og þess vegna er það, að ég ber fram brtt. mína, sem er nr. l,b, þ. e. a. s., að á eftir 1. gr. komi ný gr. Því að ef ég gæti trúað því, að ríkissjóður gæti borgað þessar 5 millj. kr., hefði ég ekki borið Þá brtt. fram. Þess vegna þorði ég ekki annað en að taka hér upp um leið heimild fyrir ríkisstj. til þessa, ef hún teldi hæpið, að tekjurnar nægðu, fyrir utan allar aðrar skuldbindingar, sem á ríkisstj, hvíla, til þess að svara út þessum 5 millj. kr., og legg ég til, að heimilt sé þá að leggja 5% útflutningsgjald á íslenzkar afurðir, eins og til er tekið að öðru leyti í þessari brtt. Ég vonast þó til, að ríkisstj. þurfi ekki að nota þetta alveg út í æsar, en get hugsað mér, að með þessari leið verði hægt að afla um það bil helming af þessum 5 millj., eða 2½ millj., með þessu útflutningsgjaldi.
Skal ég svo ekki ræða um orðunina á þessari till. sérstaklega. Ég er fús til þess kannske að víkja einhverju við í orðalagi þessara brtt. ef eitthvað þætti þar vanhugsað. Hygg ég þó, að þessar till. geti staðizt.
Ég hef svo ekki haggað neitt við 2. gr. frv., sem er um heimild til þess að ákveða farmgjöld af vörum. Ég álít þó óþarft að lögbinda þetta, því að ríkisstj. gæti náð þessu takmarki með samningum, sérstaklega þegar hún hefur vald til að gefa út bráðabirgðal., ef menn væru ósanngjarnir í þessu sambandi.
Ég hef ekki heldur haggað 3. gr. Ég hef að nokkru leyti lagt samþykki mitt til þeirrar gr. með því að vera með í að samþ. tollskrána. Ég skal ekki segja um það fyrir mitt leyti, hvort of langt er gengið í 3. lið gr., þar sem um er að ræða hækkun tolls af áfengi og tóbaki. En það má nú lengi hlaða á drógina.
Aftur á móti hef ég lagt til, að 4. gr. yrði felld niður, sem aðeins er af því, að ég tek 5 millj. kr. heimildina upp í 1. gr. samkv. minni brtt.
5. gr., um útflutningsgjaldið, orða ég svo um, eingöngu vegna þess, að það er óþarfi og fjarstæða að gefa heimild upp á 10% útflutningsgjald, ef heimildin er á annað borð bundin við 5 millj. kr. framlag úr ríkissjóði.
6. gr. hef ég lagt til að fella niður, af sömu ástæðu, að það er alveg óþarft að leggja á nokkurn hækkunarskatt vegna þessarar 5 millj. kr. heimildar, og satt að segja óviðkunnanlegt, þó að það sé ekkert á móts við það, sem var í frv. upphaflega. Hygg ég, að þetta geri það álit manna á Alþ. ákveðnara, að það vandi ekki svo störf sín sem vera ætti og það gæti gert, þar sem hæstv. Alþ. er nýbúið að setja vel undirbúin skattal. á þessu þingi og svo seinna á þessu sama þingi kemur með frv. um gífurlega skatta til viðbótar við það. Þó að sumir hafi nefnt 12% skattsviðaukann, þá kemur hann ekki þessu máli við, því að hann mundi renna til bæjar- og sveitarsjóða, og til þess mun ekki vera sérstök ástæða nú.
Ég skal ekki neitt í þessu sambandi ræða brtt. hv. 1. þm. Eyf. (BSt), sem leggur til, að frv. verði fært til samræmis við það form, sem það hafði upphaflega. Og ef hans brtt. væri samþ., gerði hún geysimikla breyt. á frv.
7. gr. legg ég til, að felld verði niður, sem er eingöngu af því, að efni hennar er tekið upp í aðra brtt. hjá mér. Og svo að lokum legg ég til, að fyrirsögn frv. verði breytt í samræmi við þá breyt., sem ég legg til, að gerð verði á frv., og legg til, að frv. heiti „Frv. til laga um ráðstafanir gegn dýrtíð í landinu og tekjuöflun í því skyni.
Ég hef nú gert grein fyrir brtt. mínum og læt útrætt um málið að sinni.