16.06.1941
Efri deild: 82. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1195 í B-deild Alþingistíðinda. (2786)
168. mál, ráðstafanir og tekjuöflunar vegna dýrtíðar og erfiðleika atvinnuveganna
Erlendur Þorsteinsson:
Frv. þetta er flutt í Nd. af meiri hl. fjhn. þeirrar deildar, þar sem fulltrúi Alþfl. í n. vildi ekki vera með í því að flytja frv. eins og það lá .þá fyrir. Nú hefur frv. tekið miklum breytingum til bóta í Nd. og hef ég því hér í fjhn. Ed. getað orðið sammála meðnm. mínum um að mæla með. frv. með breytingunum. Þar sem hvorugur þeirra hefur farið inn á það að ræða frv. almennt, þá mun ég einnig sleppa því og halda mér mest við þær brtt., sem ég hef lagt fram, og víkja að öðrum brtt., sem hér liggja fyrir.
Ég vil strax taka það fram, að ég hefði að vísu kosið, að tryggilegar og betur hefði verið búið um l. gr. frv. heldur en nú er gert, t. d. með því að skipa sérstaka yfirverðlagsnefnd, sem hefði það með höndum að hafa nánari ákvarðanir á verðlagi erlendra og innlendra nauðsynjavara, sem landsmönnum eru seldar í landinu. En þar sem það var vitað í Nd., að um það gæti ekki fengizt samkomulag, þá hef ég sleppt því að bera fram slíka brtt. hér í því trausti, að ríkisstj. haldi sér að þeim takmörkunum, sem getið er um í niðurlagi 1. gr., og á ég þar við, að hún láti fara fram athuganir á þeim atriðum, sem þar eru nefnd, áður en nokkrar greiðslur eru lagðar fram skv. frv.
Tilgangur þessa frv. er tvenns konar. Í fyrsta lagi að gera tilraunir til þess að halda niðri dýrtíðinni í landinu og koma í veg fyrir það, að vísitalan hækki, sem hefur þau áhrif, að kaupgjald og framleiðslukostnaðurinn hækkar ekki frá því, sem nú er. Og í 1. gr. frv. er ríkisstj. veitt heimild til þess, ef sérstaklega stendur á, að styðja þá framleiðendur, sem af völdum ófriðarins geta ekki selt vörur sínar fyrir framleiðslukostnaði.
Sú till., sem fyrir liggur frá meðflm. mínum, hv. 1. þm. Reykv., útilokar aðeins þann möguleika, að ríkisstj. gæti, þó nauðsyn væri til þess, hlaupið undir bagga með einstaka atvinnugreinum, og vil ég benda á það í sambandi við þetta, að hv. l. þm. Reykv. taldi það goðgá, ef þyrfti, eins og hann tók fram, að greiða, uppbót á síld. Nú er að vísu hægt að veita ýmsum atvinnugreinum stuðning án þess um beinar greiðslur sé að ræða. En hins vegar er með þær ábyrgðir, sem ríkisstj. veitir, eins og aðrar ábyrgðir, að þegar þær eru veittar, þá verður að gera ráð fyrir því, að það þurfi að greiða þær, og það er vitanlega hyggilegt að hafa til þess heimild í sérstökum lögum, og afla til þess tekna, þar sem ekki er gert ráð fyrir í almennum fjárlögum, að til slíkra greiðslna komi.
Ég vil benda á það í þessu sambandi, að í fyrra var komið á síldarsöltun með ábyrgð ríkisstj. Að vísu var sú ábyrgð mjög takmörkuð og gerð með meðábyrgð, og ég hygg, að ef illa hefði farið, þá hefðu þær greiðslur, sem ríkið ábyrgðist, verið mjög ófullnægjandi. En sem betur fór, þurfti ekki að greiða þessa ábyrgð, en vitanlega gæti komið til þess, ef í slíka ábyrgð væri gengið, hvort sem það væri við þennan eða einhvern annan atvinnuveg. Það hlýtur einnig alltaf að vera álitamál, hvort ekki muni svara tilkostnaði fyrir ríkisstj. og þjóðfélagið í heild að styrkja atvinnuvegina, sem af einhverjum ástæðum yrðu fyrir óviðráðanlegum skakkaföllum, til þess að þeir gætu haldið áfram.
Nú er það vitanlega skiljanlegt, að ríkisstj. þurfi á tekjum að halda til þess að geta framkvæmt þennan tvenns konar tilgang, sem í frv. felst, og hefur ríkisstj. í 5. og 6. gr. óskað eftir heimild til þess að fá nokkrar tekjur til að styrkja framleiðendur, sem á styrjaldartímum neyðast til þess að selja vörur sínar með óeðlilega lágu verði, og í 4. gr. er ríkisstj. heimilað að verja upphæð af tekjum þessa árs í þessu sama skyni. En með 2. og 3. gr. hyggst ríkisstj. að lækka dýrtíðina í landinu, t. d. með því að ákveða farmgjöld, þannig að þau félög, sem eiga skip, sem eru og hafa verið í förum milli landa, hafi ekki jafngífurlegan gróða af þessu og mun hafa verið s. 1. ár, en í 3. gr. er gert ráð fyrir að fella niður tolla af nauðsynjavörum, sem vitanlega hlýtur að koma neytendum til góða, og verður til þess að halda niðri dýrtíðinni og lækka útsöluverðið.
Ég tel nauðsynlegt, og vil taka það skýrt fram, að ég vænti þess fastlega, að ríkisstj. taki til athugunar verðlagsákvarðanir, sem framkvæmdar eru hér, eins og sakir standa nú, og þá sérstaklega verðlagningu á vörum, sem fluttar eru inn.
Mér er ekki kunnugt um, hvernig þetta verðlag er framkvæmt, en ég hef heyrt, að verðlagsnefnd ákveði sérstaka prósentu, sem seljendum er heimilt að taka í álagningu, og að þessi prósenta sé ákveðin í samræmi við þann tilkostnað, sem álitinn var, að hefði verið árið 1939. Nú vil ég benda á það hér, að það þarf ekki að vera réttur grundvöllur fyrir þessari álagningu, vegna þess að vörur hafa hækkað svo mikið, og ég tel, að það þurfi ekki sömu álagningu og þurfti árið 1939.
Eins og ég tók fram áðan, er hér um tvenns konar tekjuöflun að ræða. Það er annars vegar útflutningsgjaldið og hins vegar álagning á tekjuskattinn. Ég er viss um það, að þegar menn hafa athugað útflutningsgjaldið, þá hafa menn einblínt á þær geysisölur, sem voru á síðari hluta ársins 1940 og það, sem af er 1941, og þegar talað er um 10% álagningu sem ekki of háa, þá hljóta menn að hafa miðað við það.
Nú er það vitað, að fyrir liggur uppkast að samningum milli Breta og Íslendinga, og eftir því, sem fram hefur komið, þá virðist svo sem ríkisstj. muni hafa í hyggju að ganga að því samkomulagi. En með því samkomulagi er að vissu leyti fallinn grundvöllurinn undan hinu háa útflutningsgjaldi, eða því, sem menn álitu, að hægt væri að taka, og það er af þeim ástæðum, eftir því sem ég veit bezt, að Bretar munu sjálfir ætla að kaupa hér þann ísaða fisk, sem þeir flytja út, með ákveðnu verði, sem mér er tjáð, að muni vera 0.35 kr. pr. kg., og greiða þeir gjöldin, sem nú eru greidd á þessum vörum, en ekki þau gjöld, sem lögð eru á þessar vörur með þessu frv., sem hér liggur fyrir. Það er því augljóst, að þetta hlýtur að lenda á framleiðendunum, útgerðarmönnum og sjómönnum.
Nú er að það að athuga, að þessir 2 aðilar hafa að mjög litlu eða engu leyti orðið aðnjótandi þess gróða, sem hefur orðið á ísfiskssölu til Bretlands síðari hluta ársins 1940 og það, sem af er 1941. Og það er af þeim ástæðum, að enginn þeirra hefur verið þess umkominn að hafa skip í förum, sem flytja þessar vörur til markaðslandsins, heldur hafa þeir selt þessar vörur fyrir ákveðið verð, en kaupandinn greitt útflutningsgjaldið og sjálfur tekið áhættuna, sem í flestum tilfellum hefur verið lítil, en gróðinn hefur verið stórkostlegri en dæmi hafa þekkzt hér áður.
Ég vil þess vegna halda því fram, að það sé fullkomlega réttlátt, sem er aðalbreytingin í þessari brtt. minni, sem liggur hér fyrir á þskj. 768, að þetta gjald verði fært niður í 5% sem hámark. Hins vegar hef ég tekið það fram, að ef sérstakar söluástæður eru fyrir hendi, þá megi ákveða gjaldið 10%, og það geri ég með tilliti til þess, að ef svo færi, að erlendir menn, sem hafa skip í förum, skyldu kaupa fiskinn og flytja hann út, fá slíkt verð fyrir hann og slíka sölu sem hefur verið undanfarið, þá er ekki ósanngjarnt, en réttlátt, að láta þá greiða 10% eins og farið er fram á í þessum lögum:
Ég vil einnig taka það fram, að að því er ég bezt veit, þá eru engar vörur framleiddar hér á landi, sem fluttar eru út hálfunnar eða fullunnar, aðrar en hinn nýi fiskur, sem gætu borið það gjald, 10%, sem hér er rætt um.
Nú má að vísu segja, að í 5. gr. frv. eins og hún liggur nú fyrir sé heimild fyrir ríkisstj. að ákveða þetta gjald undir 10%, og mismunandi eftir því, um hvaða vörur væri að ræða, og eftir því, sem henni gott þætti á hverjum tíma. En ef það er rétt, sem ég hygg, að ríkisstj. telji sig þurfa mikla fjárfúlgu til að gera þetta, þá hygg ég, að hún muni heldur nota fyllstu álagningu á hverjum tíma, og það er þess vegna, sem ég legg áherzlu á það, að útflutningsgjaldið sé að jafnaði ekki hærra en 5%.
Jafnframt þessu vil ég breyta hér ýmsu öðru í þessari áminnztu 5. gr., og er þá næsti liður í till. minni sá, að ríkisstj. sé heimilt að ákveða mismunandi gjald af hinum ýmsu útflutningsvörum. Þetta var í 5. gr. eins og hún liggur fyrir eftir 2. umr. í Nd., en ég vil bæta hér inn í „á ýmsum tímum árs“, því að ég tel nauðsynlegt, að ríkisstj. hafi þessa heimild, því að það er ekki víst, að sama vara þoli sama gjald á öllum tímum ár síns.
Ég vil í þessu sambandi minnast dálítið á það, að t. d. haustvertíð á Vesturlandi og einnig Suðurlandi, eins og t. d. í Vestmannaeyjum, sem hv. þm. Vestm. getur nú betur upplýst en ég, mun tæplega þola það á þessari vertíð, að teknar verði fullar prósentur af fob-andvirðinu, þó að það verði fært ofan í 5%, sem ég nú vona. Þá legg ég og til, að útflutningsgjaldið megi aldrei vera það hátt, að það ásamt framleiðslukostnaðinum nemi hærri upphæð en söluverðið er.
Ég kem þá að annarri höfuðbreytingunni við 5. gr., um það, að útflutningsgjaldið af afurðum sé reiknað af hráefninu eingöngu. Í 5. gr. eins og hún er nú á að reikna það af fobverðinu. En það er alkunnugt, að kostnaðurinn við að breyta einhverri vörutegund í fullunna vöru úr hráefni nemur oft hærri upphæð en sjálft hráefnið kostar. Ef einhver á kost á að flytja út hráefnið, t. d. frystan fisk eða frysta síld, en vill af einhverjum ástæðum breyta því í unna vöru, þá er undarlegt að refsa honum með þessum mikla skatti fyrir að veita mörgu fólki atvinnu við það.
Því má svara til, að hér sé nóg Bretavinna, en á Austur- og Norðurlandi er engin Bretavinna, a. m. k. á mörgum stöðum, og þar verður engin atvinna, ef ekki verður haldið uppi fiskverkun og síldveiðum.
Ég vil benda á dæmi til að útskýra þann mismun, sem er á verði á hráefni og fullverkaðri vöru :
500 kg. af ísfiski kosta 175 kr. 5% útflutningsgjald af því er kr. 8.75. Sé skippundið verkað, er óhætt að gera ráð fyrir 285 kr. verði. Útflutningsgjaldið af því yrði samkv. sama hundraðshluta kr. 14.25. Mismunurinn, kr. 5,50, er þá eins konar refsigjald fyrir að verka hvert skippund fiskjar og veita atvinnu við það að gera útflutningsvöruna verðmætari.
Enn gífurlegri er þó munurinn, ef síldin er athuguð. Hráefni í þessu sambandi má kalla þá síld, sem flutt er út í ís. Það hefur ekki verið mikið að því gert frá Norðurlandi. En mér er tjáð, að faxasíld hafi verið flutt út í ís fyrir verð, sem svarar 25 kr. tunnan. 5% af því er kr. 1.25. Ef sama síld væri verkuð og sett í umbúðir og flutt út þannig, mundi hún kosta sem næst 85 kr., eða ekki undir því. 5% af því eru kr. 4.25. Það eru því 3 kr., sem framleiðandinn þarf að greiða í refsiskatt fyrir að veita atvinnu við að breyta þessu hráefni í miklu verðmætari útflutningsvöru.
Við vinnslu og verkun síldar verður að gera grein fyrir hverjum einasta kostnaðarlið nákvæmlega, umbúðum, salti, kryddi, vinnulaunum o. s. frv., hverjum einasta eyri er ráðstafað. Þetta mundi því koma fram í lækkuðu verði á hráefninu, lægra síldarverði til útgerðarmanna og sjómanna, lækkuðum launum til þeirra, sem verðmætanna afla, því áður er búið að gera grein fyrir öllu, sem í þennan atvinnurekstur er lagt, og búið að greiða það eða festa andvirði þess.
Þá sný ég mér að bræðslusíldinni. Ég hef heyrt, að tilboð liggi fyrir um kaup á síldarlýsi á £ 25 pr. smálest fob. Hins vegar liggur ekki fyrir tilboð í mjölið, og er því óvíst, hvernig fer um bræðslu á þessu sumri. En það ætti að vera hægt að gera ráð fyrir, að það fáist ca. £ 16 fyrir tonn af mjöli fob. Með því verði, £ 25 fyrr smál. af lýsi og £ 16 fyrir smál. af mjöli, ætti að vera hægt að greiða kr. 12 fyrir hvert mál síldar (hráefnið).
Gera má ráð fyrir, að úr hverju máli síldar fáist 21 kg. af lýsi og 21 kg. af mjöli. Samkv. því verðtilboði, sem ég gat um, ætti 21 kg. af lýsi að seljast fyrir kr. 13.65, en 21 kg. af mjöli fyrir kr. 8.73. Verð unninna afurða úr einu máli síldar yrði þá samtals kr. 22,38 eða 22,40. Ef eingöngu er tekið hráefnið, miðað við 12 kr. verð, yrði 5% útflutningsgjaldið kr. 0,60. En ef tekið er saman fobverð afurðanna úr einu máli, kr. 22,40, þá væri 5% gjaldið af sama síldarmagni kr. 1.12, eða nærfellt helmingi hærra.
Úr því þetta gjald á að greiðast af fobverðinu, mun útflytjandinn reikna með því eins og hverjum öðrum kostnaði. Þegar ríkisverksmiðjurnar ákveða útborgunarverð sitt, munu þær draga þetta gjald frá áður og haga greiðslu síldar samkv. því. Og einkaverksmiðjurnar munu haga verði eftir verði ríkisverksmiðjanna.
Verksmiðjurnar hafa sinn fasta vinnslukostnað, sem ekki er unnt að lækka, viðhald, kol, salt, umbúðir, vinnulaun, húsnæði o. s. frv. Eini liðurinn, sem hægt er að taka þennan skatt af, er hráefnið. Og það verður gert. Eins er um saltsíldina. Þetta gjald lendir því eingöngu á útgerðarmönnum og sjómönnum.
5% útflutningsgjald af fob-verði síldarafurða táknar því kr. 1.12–1.14 lækkun á hverju máli síldar til sjómanna og útgerðarmanna. Ef hv. Ed. samþykkir ekki brtt. mínar, og frv. fer héðan óbreytt og ríkisstj. notar heimild frv. til
þess að leggja á 10% útflutningsgjald, þá verður þessi skattur helmingi þyngri.
Ég held, að ég hafi nú fært nægileg rök fyrir þessum lið till., sem ég raunar tel aðra aðalbreytingartill. mína.
Síðasta mgr. brtt. minnar við 5. gr. fjallar um það, að aðeins megi taka útflutningsgjald af þeim vörum, sem framleiddar eru eftir að reglugerðin hefur ákveðið gjaldið, en ekki á fyrirliggjandi áður aflaðar birgðir, nema því aðeins, að þær seljist á hærra verði en áður seldar vörur, sem framleiddar voru á sama tíma, en þó aldrei nema af verðmismuninum.
Það er augljóst ranglætið í því að taka útflutningsgjald af fiski t. d. vegna þess, að ekki var hægt að selja hann nýjan, og menn hafa orðið að salta þess vegna, en hefðu annars getað fengið betra verð fyrir. Ég hef heyrt sagt, að ein verstöð á Suðurlandi hafi selt allan sinn fisk nýjan á ágætu verði, en önnur nærliggjandi ekki neitt og varð að salta allan fiskinn. Nú fær hún ekki jafnhátt verð og hin, en verður auk þess að borga hátt útflutningsgjald, ef 5. gr. frv. verður samþ. óbreytt.
Þá á ég aðra brtt. á sama þskj. um það að fella burt ákvæðið um, að ríkisstj. ákveði refsingar fyrir brot á lögunum og reglugerðinni, og í öðru lagi um það, að á eftir 7. gr. frv. komi ný gr., svo hljóðandi:
„Brot gegn lögum þessum og reglugerðum, sem settar kunna að verða samkv. þeim, skulu varða sektum allt að 100 þús. kr., nema þyngri refsing liggi við samkv. öðrum lögum, og skal farið með mál út af slíkum brotum sem almenn lögreglumál.“
Ég er ekki svo fróður, að ég þekki dæmi til þess, að með reglugerð sé ákveðin refsing fyrir lögbrot, og flyt því þessa brtt., að mér finnst óviðeigandi, að ríkisstj. fari að taka ákvörðunarréttinn af Alþingi um það, hverjum refsingum skuli beita fyrir brot á þessum lögum, og hvað þungum. Vænti ég þess vegna, að hv. d. fallist á að breyta þessu. Því ákvæðið er, vægast sagt, óviðeigandi nú.
Ég held að ég hafi nú gert nægjanlega grein fyrir þeim brtt., sem ég legg fram. Vænti ég svo, að hv. d. fallist á þessar brtt., því að ég get ekki séð, að þær séu á neinn hátt ósanngjarnar, heldur miða þær allar að því að jafna hlut þeirra, sem gjöldin eiga að greiða, og þær ákveða enn fremur, hversu langt ríkisstj. megi fara í álögum sínum.
Um brtt. hv. 1. þm. Eyf. get ég verið fáorður. Hún er sama efnis og ákvæði, sem fellt var í Nd. fyrir fáum dögum. Hv. þm. segist hafa tekið. hana upp vegna þess, að ekki náðist samkomulag í fjhn. um, að frv. yrði samþ. óbreytt hér í d. eins og það kom frá Nd. Enda skilst mér, að hvorki hann né hans flokkur leggi neina áherzlu á að fá brtt. samþykkta (BSt: Jú, áherzlu legg ég á það!).
Ég fer svo ekki fleiri orðum um frv. að sinni. Ég hef ekki farið út í að ræða þetta mál mikið almennt. Ég hef bent á það, að ég sé óánægður með skattana og gjöldin samkv. frv., ekki svo mjög vegna þess, að þau séu of há, heldur vegna þess, hve þau koma misjafnlega niður.