16.06.1941
Efri deild: 82. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1209 í B-deild Alþingistíðinda. (2791)

168. mál, ráðstafanir og tekjuöflunar vegna dýrtíðar og erfiðleika atvinnuveganna

Jóhann Jósefsson:

Herra forseti! Ég verð að segja það, að niðurlag ræðu hv. þm. Hafnf. (BSn) kom mér dálítið ókunnuglega fyrir, fyrst og fremst vegna þess, að ég hef nú ekki heyrt neins staðar koma fram þá skoðun, að þessi hv. d. hefði ekki neinn rétt til þess að koma fram breyt. á málum án þess að það þar með væri dauðadæmt, og í öðru lagi vegna þess, að mér finnst, að það líti út nærri því eins og hv. þm. Hafnf. sé að fiska eftir því, að slík hótun komi fram í ræðu einhvers af hæstv. ráðh. Ég veit nú, satt að segja, ekki, til hvers verið er að vísa málum til þessarar hv. d., sem eru jafnyfirgripsmikil og þetta mál, sem hér um ræðir, ef því eiga að fylgja þau ummæli, að málið sé dautt, ef nokkur stafur í frv. er hreyfður. Það er sannarlega ekki þessari hv. þd. að kenna, að málið kemur ekki til hennar fyrr en á elleftu stundu. Og það má bæta því við, að það hefur nú verið vakað hér á Alþ. yfir minni háttar málum heldur en því, sem nú liggur hér fyrir til umr., ef marka má það, sem ýmsir hv. þm. hafa látið fara frá sér viðvíkjandi því, að þetta mál sé fyrir alla þjóðarheildina. Ég held þess vegna, að þessir útúrdúrar hjá hv. þm. Hafnf. séu allsendis óþarfir. Ég vil fyrir mitt leyti algerlega mótmæla því, að kallaðar séu fram yfirlýsingar til þess að kúga þessa hv. d. til þess að láta þetta mál afskiptalaust frá sér fara.

Annars hefur nú margt komið hér fram. Og ég ætla mér ekki þá dul að koma inn á allar þær ræður, sem hér hafa fluttar verið í þessari hv. d. um þetta mál. En ég vil sérstaklega segja það við hæstv. ríkisstj., að mér finnst það dálítið hæpinn leikur að halda því fram, að hæstv. Alþ. beri ábyrgð á því, hvort allar þær ráðstafanir geti orðið framkvæmdar, sem hér eru nú hafðar fyrir augum, og að hæstv. ríkisstj. hafi nægilegt fjármagn fyrir hendi til þess að koma í veg fyrir verðbólguna, vinna bug á dýrtíðinni, bæta upp afurðir o. s. frv. o. s. frv. Ég vil í þessu sambandi minna hæstv. ríkisstj. á það, að það var fyrir alllöngu síðan nokkuð auðséð, að verðlag í landinu mundi hækka, dýrtíð aukast. Það hefur sennilega ekki verið dulið fyrir hæstv. ríkisstj. frekar en öðrum landsmönnum. Og í öðru lagi tel ég, að hæstv. ríkisstj. geti ekki með fullum rétti varpað fram ásökunum á hendur þeirra manna, sem nú vilja ekki gína yfir hverri flugu, sem frá henni kann að koma í þessu efni, af því að ég álít, að ríkisstj. sjálf hafi látið ónotuð tækifæri, og það jafnvel löngu áður en þing kom saman, til að draga úr þeim voða, sem menn þykjast nú sjá framundan og mála mjög svart. Hæstv. ríkisstj. kann að segja, að hún hafi ekki haft neitt fjármagn til þess fyrir hendi. Ég vil því þar til svara, að henni hefði verið innan handar að kalla þing saman. Það eru ekki orðin nein vandræði á þessu landi að kalla saman þessa 40–50 þm., ef mikið liggur við.

Hæstv. ríkisstj. og hv. þm. yfirleitt hafa fest mjög augun við þann stórkostlega gróða á sölu sjávarafurða, sem ég ber ekki á móti, að hafi átt sér stað, og var öllum kunnur, líka hæstv. ríkisstj. Hæstv. ríkisstj. hefur gert ýmsar ráðstafanir, sem að vísu eru ekki beinar skattaálögur, en þó geta komið fram óbeint sem nokkurs konar skattur á þessar sölur, og það á milli þinga. Það er kunnugt, að snemma á þessu stríðstímabili kom í ljós, að Bretar vildu gefa eftir svo kallaðan ísfiskstoll, þá 10 af hundraði, sem menn voru vanir að borga í toll af fiski þar í landinu. Það mun hafa verið einhver fyrsta samningsniðurstaðan milli brezk-íslenzku samninganefndarinnar og Breta, að þessi tollur skyldi niður falla. Jafnframt fóru sölur togara og fiskútflutningur síhækkandi. Það hefði ekki verið fráleit ráðstöfun, ef hæstv. ríkisstj. hefði hugkvæmzt á þessu tímabili að gera einhverjar ráðstafanir til þess að svipuð upphæð hefði verið lögð í sjóð til að byrja með eins og numið hefði þessum ísfiskstolli, og sem á vissu tímabili hefði haft tiltölulega litla þýðingu fyrir útflytjendur landsins. Hæstv. ríkisstj. mun svara mér því, að hún hafi ekki haft heimild til að gera slíkt. Ég vil þá benda á, að á þessum sama tíma hafði hæstv. ríkisstj. heimild til þess að skipa stjórn, sem kölluð var útflutningsráð, til þess að úthluta leyfum fyrir útflutningi á vörum til Bretlands og annarra landa. Mér er nær að halda, að sumpart með úthlutun slíkra útflutningsleyfa og sumpart með samkomulagi við þá, sem skipin áttu og græddu stórfé á þessum ísfisksförmum, hefði þessu mátt til leiðar koma. Og hugsum okkur, að eitthvað slíkt hefði verið gert með samningum milli ríkisstj. og útflytjendanna. Það væri orðin lagleg fúlga, sem ríkisstj. hefði nú handa á milli.

Hæstv. ríkisstj. taldi sér fært að láta útflytjendur gera ráðstöfun, þó að það sé kannske ekki bein innheimta fjár, sem kom niður á svipaðan hátt þessu, sem ég var að tala um, og skal ég nefna dæmi. Hæstv. ríkisstj. gerir — að vísu ekki ótilneydd — samning við Breta um það, að helmingur af öllu þorskalýsi í landinu skuli fara til Bretlands. Það er vitað, að þorskalýsisframleiðendur áttu vísan markað í Ameríku fyrir allt það þorskalýsi, sem hér er framleitt, og miklu meira. Þessi samningur kom þannig við útflytjendur, að útflutningsráð hefur gert það að skilyrði fyrir hverri sendingu á þorskalýsi til Bandaríkjanna, að viðkomandi útflytjandi leggi til hliðar þorskalýsi og hafi til reiðu til útflutnings til Bretlands; annars fær hann ekki útflutningsleyfi fyrir þessari vöru til Bandaríkjanna. Þetta er búið að baka útflytjendum þorskalýsis allmikið vaxtatap og á kannske eftir að baka þeim enn meira slíkt tap, og hver veit hvaða tap. Ég bendi ekki á þetta sem ásökunarefni á hendur ríkisstj. fyrir það, að hún neyddist til að ganga inn á þessa samninga, heldur til þess að staðfesta það, að hæstv. ríkisstjórn hefur haft, gegnum sínar mörgu undirnefndir, ýmis ráð til þess að hafa hönd í bagga um það, hvernig vara útflytjenda er seld. Þetta segi ég til þess að styðja þá skoðun, að hæstv. ríkisstj. megi ekki ásaka hv. alþm. svo mjög fyrir það, þó að þeir nú vilji, að þessi nýi skattur sé a. m. k. eðlilegur og eitthvað reglulegur og með nokkrum jöfnuði látinn koma á landsfólkið, og telji það ekki sem einhverja uppreisn móti hennar viðreisnarráðstöfunum, eins og orð hæstv. viðskmrh. virtust gefa til kynna, að ríkisstj. teldi, þar sem hann var að tala um, að hv. þm. geystust hér fram og þættust vilja gera stóra hluti, en vildu engu til þeirra fórna. Það eru nokkuð harðar ásakanir, og ekki sízt frá þeim mönnum, sem búa í hálfgerðu glerhúsi, eins og hæstv. ríkisstj. gerir að því er snertir hennar aðgerðaleysi á síðasta ári í þessum efnum um að hafa verulegan hemil á dýrtíðinni.

Hæstv. viðskmrh. lýsti því yfir í sinni framsöguræðu í hv. Nd., að eftir hans meiningu yrði að fara upp í topp með útflutningsgjaldið, og að mér skildist líka hafa þessa aukalegu skattaálagningu, sem þá var í frv. Ég get mér þess til, að honum finnist, eftir því, sem nú horfir við, að þess muni ekki síður þörf að því er snertir útflutningsgjaldið nú, eftir að álaginu á tekjuskattinn hefur verið breytt, eins og frv. ber með sér, í hv. Nd. Og þetta gerir mig allvarfærinn í í því, að hæstv. ríkisstj. hafi heimildir svo ótakmarkaðar sem í frv. greinir gagnvart sjávarútvegsvörum. Ég skal ekkert vantreysta þeim góða vilja, sem fram kemur hjá hæstv. ríkisstjórn í því að reyna nú að spyrna á móti dýrtíðinni. Og fyrirfram skal ég engar spár koma með um það hvernig það megi takast. En vissulega hefði Þetta verið mun auðveldara, ef fyrr hefði verið gefinn gaumur að hugsanlegum úrlausnarleiðum í þessu efni heldur en orðið er, þegar svo horfir við eins og nú er, að það er eins og meginþunginn af útgjaldabyrðinni vegna þessara ráðstafana eigi að falla yfir á sjávarafurðirnar og þá menn, sem að þessari framleiðslu standa.

Það er sannast mála, að þær brtt., sem hér liggja fyrir, eru allvíðtækar og stefna nokkuð sín í hvora áttina. Ég tel, að hv. 1. þm. Reykv. fari ekki með allsendis óhæfa till., þegar hann heldur því fram, að hæstv. ríkisstj. gæti látið sér nægja að hafa til að byrja með 5 millj. kr. heimild í þessu efni og svo aðgang að því að skattleggja sjávarafurðir upp í 5%, eins og þar stendur, af því að hún hefur alltaf þá leið opna að kalla saman þing til ákvarðana, ef henni býður svo við að horfa.

Annars skal ég segja það um brtt. hv.10. landsk., að mér virðist í henni gæta mikillar sanngirni í garð þeirra, sem að sjávarútvegi standa, og ég sé ekkert við það að athuga, þó að nokkuð sé hveðið nánar á, eins og í þeirri brtt. er gert, um það, hvernig þeirri álagningu skuli hagað, sem hugsað er að leggja á sjávarafurðir. Því að vitanlega liggur ekkert fyrir frá hæstv. ríkisstj. um álagið annað en það, að hún óskar eftir að fá heimild til þess að fara með þetta útflutningsgjald upp í 10%.

Hæstv. viðskmrh. talaði um, að með því sem fram hefði farið í hv. Nd. hefði verið rýrð sú áætlun, sem gerð hefði verið innan ríkisstj. um framkvæmdir í þessu efni. Mér hefur heyrzt, bæði við umr. í hv. Nd. og raunar líka hér í hv. d., að það hafi verið lýst dálítið eftir því, hvað ríkisstj. hefði í huga að gera. En hennar áætlun um það hefur enn ekki verið lögð fram. Og eins og tekið hefur verið fram við þessar umr. af hv. þm., hafa verið uppi óskir um það frá mörgum hv. þm., að það væri gefin nokkur þing. frestun og þá væri unnið að því að undirbúa slíka áætlun, áður en þing kæmi saman aftur, og eins áætlun um það, hve mikið fé þyrfti til framkvæmdanna. Þegar haldið er á þessu máli þannig, að talað er um, að hér sé verið með undirbúning einhverra ráðstafana, sem geti talizt hliðstæðar gengisbreyt., eða hækkun krónunnar, þá virðist mér ekki vera sagður nema hálfur sannleikurinn. Það er að vísu rétt, að útflytjendur, sem verða að borga svo eða svo háan aukaskatt í ríkissjóð, þeir verða fyrir sama áfalli, sem kemur fram eins og verðlækkun á þeirra vörum, eins og tilsvarandi gengishækkun hefði haft. En gengishækkun hefur allt önnur áhrif á það, hvað vara umreiknast í íslenzkum krónum. En hún hefur líka áhrif á það, hvað framleiðsluvörur kosta. Það er kosturinn við að koma slíkum jöfnuði á með gengishækkun, að um leið og greiðsla lækkar að krónutölu fyrir hvert skippund fiskjar, þá lækkar verðið líka að krónutölu á því, sem útgerðarmenn verða að kaupa af línum, salti og öðru, sem þeir þurfa til útgerðarinnar. En hér er ekki um það að ræða að hafa áhrif á verð á útlendum vörum, eins og ef um gengishækkun væri að ræða, en hins vegar er um það sama að ræða viðkomandi verði til framleiðenda á vörum þeirra eftir krónutölu í íslenzkum kr., eins og um gengishækkun væri að ræða. Það er því ekki nema hálfur sannleikurinn sagður með því að líkja þessari aðferð við gengishækkun, og á því í raun og veru ekki við að tala um slíkt í þessu sambandi.

Ég get, satt að segja, ekki séð, að neinn stórvoði væri á ferðum, þó að takmarkað væri það fé, sem hér um ræðir, í bili við þessar 5 millj. kr. og lögð væri áherzla á það, sem mér finnst, að þurfi að leggja mesta áherzlu á, sem sé að styðja landbúnaðarframleiðsluna, og þá held ég, að 5 millj. kr. mundu vera alldrjúgur stuðningur í þessu efni. Þegar svo fram á það sæist, að þær mundu ekki hrökkva til, þá mætti, eins og kom fram í ræðu h,v. 1. þm. Reykv. og allmikið hefur verið rætt um í mínum flokki, kalla saman þing til frekari ráðstafana eða átaka.

Hv. 1. þm. Eyf. ber hér fram brtt. um það að kippa málinu í það horf eins og það var fram borið í hv. Nd., og ég skal ekki um það segja, hvernig þeirri brtt. kann að reiða hér af. En það er alvarlega athugandi mál, frá sjónarmiði framleiðenda séð, ef allt á að standa óbreytt og engin lagfæring að fást fram á orðalagi eða skilgreiningu á till. gagnvart framleiðsluvörum sjávarútvegsins, hvort það er í sjálfu sér allsendis rétt að láta málið verða í því formi, sem það komst í í hv. Nd. Því að því verður ekki neitað, að þar hefur sjónarmið annara manna heldur en framleiðenda verið dregið fram, án þess að skeytt væri um hina hliðina, tekjuöflunarleiðina.