16.06.1941
Efri deild: 82. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1228 í B-deild Alþingistíðinda. (2800)
168. mál, ráðstafanir og tekjuöflunar vegna dýrtíðar og erfiðleika atvinnuveganna
Forsrh. (Hermann Jónasson) :
Út af þessum ummælum vil ég taka fram, að ég tel alls óviðeigandi, að ríkisstjórn eða aðrir setji mál þannig fram, að menn þurfi að greiða atkv. svo eða svo til þess að setja ekki málið í hættu.: Ég tók það fram, að vitanlega yrðu menn að greiða atkv. hér um brtt. eftir sinni skoðun á málinu, og það yrði þá að setja málið í hættu, ef verkast vildi, og þeir, sem þannig greiddu atkv., yrðu að taka afleiðingunum af því. Hitt tel ég alveg óviðeigandi, að ráðh. hóti nokkru um það, að ef svo eða svo verði afgr. brtt. við mál, þá fari þetta eða hitt þannig. Ég býst við, að hv. þingmenn viti það nákvæmlega eins vel og ríkisstj., hvernig málið er á vegi statt, ef brtt. við frv. verða samþ., og tel ég ekki viðeigandi, að frá neinum ráðh, komi fram nokkrar hótanir í þessu sambandi. Og ég veit, að þessi hv. þm., sem síðast talaði, getur eins vel myndað sér skoðun um það eins og ég, hvaða afleiðingar það hefur, ef brtt. verða samþ. við þetta frv. Ég tók það fram viðkomandi atkvgr. í málinu, að málið yrði vitanlega að ganga sinn gang, og svo yrði sá meiri hluti hv. þdm., sem ákveður, hvaða afgreiðslu málið fær í hv. d. að taka afleiðingunum af því. Hv. þdm. verða að gera það upp við sína eigin skoðun og sannfæringu, hvernig þeir vilja greiða atkvæði um málið til þess að forða því frá að fá þá afgreiðslu, sem þeir kjósa, að það fái ekki.