16.06.1941
Efri deild: 82. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1229 í B-deild Alþingistíðinda. (2801)
168. mál, ráðstafanir og tekjuöflunar vegna dýrtíðar og erfiðleika atvinnuveganna
Forseti (EÁrna) :
Nú vildi ég eindregið óska þess, að hv. þdm. fari að stytta mál sitt. Þetta er orðin löng umr., og ég hef enn ekkert gert til þess að takmarka ræðutíma hv. þm. En ég vil ógjarnan, að það þurfi að vaka yfir þessu máli í alla nótt. Þess vegna vænti ég þess, að hv. þdm. stytti nú mjög mál sitt.