16.06.1941
Efri deild: 82. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1232 í B-deild Alþingistíðinda. (2804)
168. mál, ráðstafanir og tekjuöflunar vegna dýrtíðar og erfiðleika atvinnuveganna
Erlendur Þorsteinsson:
Mér þykja furðulegar yfirlýsingar hv. 5. landsk. og hv. þm. Hafnf., sérstaklega þegar þess er gætt, að þær koma þvert ofan í það, sem hæstv. forsrh. lýsti yfir, að hann mundi greiða atkv. með brtt. hv. 1. þm. Eyf. (BSt: Hún verður tekin aftur, ef aðrar brtt, verða teknar aftur.) Og mér skilst, að málið væri ekki sett í voða, þó að brtt. væru samþ. á frv. Það nær ekki nokkurri átt, að hæstv. ríkisstjórn ákveði þingslit þannig, að önnur deild hæstv. Alþ. verði að gera sínar samþykktir með tilliti til þess, að ekki þurfi að breyta málinu. Og ég veit þá ekki, til hvers er verið að hafa efri deild og láta 16 þingmenn eiga þar sæti, ef þeir mega ekki greiða atkv. um mál vegna þess, að ef breyt, verða á frv., nái það ekki fram að ganga. Ég man eftir, að þetta hefur verið gert áður. En það var ekki um mál, sem skipti eins miklu afgr. á eins og er um þetta mál. Það getur ekki verið alvara hæstv. ríkisstj. að halda því fram, að hér sé um neitt sérstakt stórmál að ræða, ef hún á sama tíma álítur, að hv. Ed. hafi ekkert um það að segja, og vill, að hv. þm. þeirrar d. séu þvingaðir til þess að greiða atkv. öðruvísi en þeir sjálfir vilja um þetta mál.
Um ræðu hv. 1. þm. N.-M. (PZ) vil ég segja það, að það er lengi hægt að leika sér að tölum. Ég gæti komið með tölur, sem sýna gerólíka niðurstöðu þeirrar, sem hann komst að við sinn tölulestur. Það er líka í fyrsta skipti nú, að ég heyri því haldið fram, að bóndinn, sem framleiðir kjöt, fái með greiðslu á því borgað kaup fyrir árið á eftir. Ég hef heldur heyrt, að bændur væru með því, sem þeir fá fyrir kjöt sitt, að fá kaup fyrir árið, sem þá er að líða.
Mér skildist helzt á hv. þm. Hafnf., að hann kysi, að brtt. hv. 1. þm. Reykv. væru samþ. En það er ekki á valdi hæstv. ríkisstj. að framkvæma þessa brtt. hv. 1. þm. Reykv., ef hún verður ekki samþ., því að hún er gerólík að efni til þessu frv., sem hér liggur fyrir.
Annars er það svo, að sá ráðh. Sjálfstfl., sem mér virðist þetta heyra undir, er ekki hér í hv. d., og þykir mér kynlegt, að hann skuli ekki vera hér. Það getur verið, að einhverjar af þessum brtt., sem fyrir liggja, yrðu teknar aftur, ef skýlausar yfirlýsingar hefðu fengizt frá honum um það, hvernig mál þetta yrði framkvæmt. Ef hæstv. ráðh. hefði gefið yfirlýsingar í sambandi við brtt. mína á þskj. 768, þá vildi ég gjarnan heyra þær áður en gengið er til atkv.