14.03.1941
Efri deild: 17. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 212 í B-deild Alþingistíðinda. (285)
56. mál, verðlagsuppót á laun embættis- og starfsmanna ríkisins
*Fjmrh. (Jakob Möller) :
Ég tel óþarft að hafa mörg orð um þetta mál. Eins og segir í grg. frv., er það borið fram samkv. sameiginlegri samþykkt stj. á ráðherrafundi og í samráði við þingflokka ríkisstj. Það. hefur nú komizt í kring, að allir fastir starfsmenn einkafyrirtækja og meira eða minna opinberra stofnana og allir lausavinnumenn hafa fengið kauphækkanir, sem yfirleitt nema að minnsta kosti fullri verðlagsuppbót á óbreytt grunnkaup. Þá hefur ekki þótt annað fært en láta embættismenn og aðra starfsmenn ríkisins verða þeirrar uppbótar aðnjótandi.
Það leiðir af sjálfu sér, að fjárhæð sú, sem til uppbótarinnar er ætluð á gildandi fjárlögum, getur engan veginn orðið fullnægjandi, því að s. l. ár námu uppbæturnar þegar á 7. hundr. þús. króna, en aðeins voru veittar 350 þús. kr. fjárlögum.
Ég legg til, að málinu verði vísað til 2. umr. og fjhn., og tel æskilegt, að afgr eiðsla þess gengi sem hraðast.