16.05.1941
Efri deild: 62. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 14 í C-deild Alþingistíðinda. (2880)

41. mál, krikjuþing

Magnús Jónsson:

Ég vil þakka hv. menntmn. fyrir afgreiðslu þessa máls, þó að hún hafi dregizt alllengi, þar sem þetta var eitt af fyrstu málunum, sem borin voru fram í d. Það er ekki nema mannlegt, þó að ég vilji sérstaklega þakka hv. frsm. meiri hl. n., sem mælti með því, að frv. næði fram að ganga í þinginu. Ég vil einnig þakka hv. frsm. meiri hl. fyrir hlýleg orð um þetta mál og góðan skilning á því. Viðvíkjandi undirbúningi málsins, þá hefur það ekki verið á döfinni, síðan milliþn. fékkst við það á sínum tíma. En það kirkjuþing skyldi koma í staðinn fyrir prestastefnuna, og hefði því orðið eingöngu prestasamkoma. Þetta frv. er allt öðruvísi byggt upp. Meginatriði þess er að leyfa áhugasömum leikmönnum að taka þátt í starfi kirkjunnar með fullri ábyrgð á gerðum sínum. Ég er sannfærður um, að slíkt þing starfaði með meiri ábyrgð heldur en hv. frsm. minni hl. vildi vera láta.

Undirbúningur þessa máls er sá, að á síðustu tveimur eða þremur árum hefur það verið tekið upp af Prestafél.Ísl og áhugasömum mönnum innan prestastéttarinnar. Síðan hefur það verið rætt á fjölmennum prestafundum og stungið upp á ýmsum till., sem flestar eru komnar inn í þetta frv. Hefur verið mikið verk að vinna úr öllum þessum till. og reynt að draga úr öllum frekum kröfum, sem gerðar hafa verið, eins og unnt var. Fannst mönnum rétt, að þing þetta skyldi ekki skipað mörgum mönnum, enda hef ég meiri trú á því, sem hefur vaxtarmöguleika. Auk þess var reynt með þessu að gera eins hóflegar kröfur um styrk og unnt var. Hv. frsm. minni hl. sagði, að mál þetta hefði ekki vilja eða áhuga fólksins að baki sér. Ég vil leyfa mér að fullyrða, að þetta er ekki rétt. Mikill fjöldi leikmanna var á þeim fundi, þar sem mál þetta var mikið rætt, og komu þeir með ýmsar till. við það. Mál þetta er vel kunnugt þeim, sem hafa viljað kynna sér það. Ég hef ekki átt í því að safna undirskriftum um þetta efni, enda er nóg af slíku á Alþ. En ef menn óska eftir slíkum sönnunum fyrir vilja fólksins, væri hægur vandi að útvega þær. Ég skildi ekki vel röksemdir hv. minni hl. hvað snerti trúarlega vakningu í landinu. Ég sé ekki annað en það séu tvö mál, sem gangi hvort við hliðina á öðru. Vakning verður ekki vakin nema af stórkostlegum prédikunum, sem aðeins sjaldan eru uppi meðal mannkynsins. Leikmaður gæti alveg eins vakið í kringum sig storm eða vakningu, ef hann væri gæddur þeim guðlegu hæfileikum, sem til þess þyrfti. En það er hægt að vekja líf á annan hátt en með ákafri vakningu, sem er komið af stað af sérstökum andans mönnum, og ég hef meiri trú á hinu rólega, kröftuga lífi í hverri stofnun. Vakning hefur aldrei komið inn í kristindóm Íslendinga. Slíkt verður að koma af sjálfu sér, en tilgangslaust að berjast fyrir því. Ég vil ekki gera lítið úr kenningu Haralds sál. Níelssonar; hans áhugi og vakning stefndu í ákveðna átt (spiritismann) og hann stofnaði þar öflugan félagsskap. Ég var mjög kunnugur honum, bæði sem lærisveinn hans og síðar sem samkennari, og er ég sannfærður um, að hann var vinur kirkjunnar og vildi efla kristindóminn. Hér er um að ræða að skapa sterkt form, sem um leið getur verið afl til þeirrar vakningar, sem mun eiga vel við lundarfar okkar Íslendinga.

Hv. þm. tók til dæmis, og ég álít með réttu, búnaðarþingið og fiskiþingið, sem hvort tveggja eru þing, sem kostuð eru af ríkinu, og ég álít, að ekki sé rétt að sjá eftir því fé, sem fer til þeirra. Ég ætla náttúrlega ekki að bera búnaðarþingið saman við þennan þingvísi, sem hér er um að ræða, þar sem á búnaðarþinginu situr fjöldi fulltrúa, enda er það ákaflega kostnaðarsöm stofnun, sem engum dettur þó í hug að leggja niður. Það kann að vera, að hann mæðist yfir öllum þeim kröfum, sem til fjvn. koma frá búnaðarþinginu. En ég veit ekki, til hvers hv. þm. sitja hér á þingi, ef ekki til þess að taka á móti kröfum manna. Þarna eiga að koma fram menn, sem þekkingu og áhuga hafa fyrir málefnum þjóðarinnar, og þeir eiga ekki að vera feimnir að bera fram sínar kröfur, En fyrir utan kröfur, þá kemur, eins og við vitum, mikið af vel undirbúnum málum frá búnaðarþinginu, og mörg þeirra eru þannig, að Alþingi á erfitt með að fá þau undirbúin á annan hátt. Þau mál tekur búnaðarþingið að sér, vinnur úr þeim og sendir þau síðari til Alþingis. Það eru ekki tómar kröfur, ekki tóm heimtufrekja, sem þaðan kemur.

Það er gott, ef kirkjuþingið getur vakið óróa til meira lífs, og ég skil ekki í öðru en að Alþingi mundi standa á fótunum fyrir þeim kröfum, sem þaðan kæmu. En ég efast ekki um, að þaðan mundu koma mörg vel undirbúin mál, sem Alþingi tæki þá til meðferðar og athugunar.

Minni hl. n, hefur í nál. sínu aðallega beint þeim rökum á móti þessu máli, að þetta væri stéttarþing og væri til þess að auka það böl í landinu, sem er af stéttaskiptingunni og þessari togstreitu milli stétta. Það var eiginlega allt annað, sem kom fram í ræðu hans nú, og miklu meiri velvild til málsins en maður gat búizt við eftir nál., því að í nál. er ekki minnzt á neitt annað en þetta og lagt mjög eindregið á móti málinu.

Frsm. meiri hl. svaraði þessu fullnægjandi. Hér væri alls ekki um stéttarþing að ræða. Fyrst og fremst af því, að þó að prestar sitji á þessu þingi, þá eru það fyrir það fyrsta ekki nema mjög fáir fulltrúar fyrir prestastéttina, og auk þess álíka margir menn valdir af öllum stéttum þjóðfélagsins, og það með mjög merkilegum kosningum, þar sem eru hvorki meira né minna en á 13. hundrað kjörmenn, sem velja þessa menn um landið, hverja sem er og áhuga hafa á kirkjumálum.

En það er annað, sem ég legg meiri áherzlu á, og það er, að starf kirkjunnar er utan við stéttir, og ég get sagt það, að í vissu falli eru prestar eiginlega minnst stéttbundnir af embættismönnum landsins, A. m. k. hafa margir þeirra verið fram á síðustu aldir og eru enn bændur. Sumir hafa verið kaupmenn, en það hefur ekki verið vel séð. Margir þeirra hafa mikið stundað kennarastörf, og meira að segja hef ég heyrt nefndan einn, sem var bílstjóri, jók tekjur sínar með því, en það þótti eiga illa við. Prestar hafa því verið mjög samrýmdir þjóðinni, en það er því miður mikið að minnka. Þeir hafa lifað í hennar kjörum, og það hefur að því leyti átt vel við, þar sem starf þeirra er svo óstéttbundið, og fer nokkuð eftir því, hvort Alþingi kærir sig um þær kröfur og þá sérstaklega undirbúning málsins; sem hér er um að ræða, frá kirkjuþinginu, og hvort það kærir sig um að fá leikmenn inn í þetta.

Ég vil segja hv. frsm. minni hl. það, að þetta starf gæti einmitt vel komið á sporið þeim mönnum og leikmönnum, sem væru til þess fallnir að verða vekjendur, a. m. k. í sínum verkahring og í kringum sig, Hv. frsm. minni hl. getur a. m. k. algerlega reitt sig á fylgi mitt og fylgi frsm. meiri hl. á móti því að hlaða undir ofsa milli stétta.

Þá er það viðvíkjandi kostnaðinum. Ég veit, að það er ekki nema eðlilegt og þinginu ber skylda til þess að fara varlega í þeim hlutum. Við höfum áætlað, að á normal tímum yrði þetta 3 til 4 þús. kr. á ári, en nú skulum við fara nokkuð hærra og segja 5 þús. kr. og gæti jafnvel farið upp í 6 þús. kr. Hvað er nú þetta? Svona eins og einn starfsmaður með heldur lágum launum kostar. Ef menn trúa á þetta mál; er þá virkilegt, að Alþingi vilji ekki veita íslenzku þjóðkirkjunni fjárstyrk, sem svarar því, sem einn meðallaunaður starfsmaður hefur, til þess að geta komið upp svona stofnun? Ég trúi því ekki, að þetta mál strandi á kostnaðinum. Það er þá bara vegna þess, að menn kæra sig ekki um að afgreiða þetta mál að svo komnu.

En ég vildi láta í ljós þá ósk mína, að hv. deild vildi greiða fyrir málinu og lofa því að ganga áfram til hinnar deildarinnar, enda þó að ég geri ekki ráð fyrir því, að þetta mál komist í gegn á þessu þingi.