04.06.1941
Neðri deild: 70. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 29 í C-deild Alþingistíðinda. (2900)

41. mál, krikjuþing

Steingrímur Steinþórsson:

Það er sjálfsagt að gleðjast, þegar eitthvað gott kemur frá kirkjunnar mönnum. Það ber vott um, að þar sé um eitthvert líf og nokkurn þrótt að ræða.

Ég get vel viðurkennt, að það getur verið gott að breyta til, ef eldri aðferðir og skipulag hafa ekki dugað. En hvort þetta kirkjuþing hefur þýðingu fyrir kristindóm og trúarlíf í landinu, er ég ekki fær um að dæma, en þó get ég ekki annað en dregið í efa að svo sé. Ég held að það vanti fremur eitthvað annað í kirkjulífið en meira af ytri formum, sem ég tel trúar- og kirkjulíf vera stirðnað í.

Hv. 1. þm. Rang. lýsti ástandinu þannig í skipulagskerfi hinna kirkjulegu samtaka, að mér datt í hug, að því mætti líkja við koppa, sem er hvolft hverjum utan um annan. Eða, svo viðhaft sé kurteislegt orðalag, að þar sé hver silkihúfan upp af annarri. Ég verð að segja, að mér blöskrar, ef nú á að fara að bæta einni nýrri stofnun við allt það, sem er þarna fyrir. Ef þörf er að gera breytingar og ef kirkjuþingið á einhvern rétt á sér, þá liggur í augum uppi, að jafnframt þarf að gera aðrar breyingar á skipun þessara mála, og á ég þar við, að fækkað sé þeim stofnunum, sem ekki duga nú, og dregið úr hinum miklu fundahöldum.

Ég vil taka undir með hv. þm. V.-Húnv., að mjög er óviðeigandi að lögbinda samkomustað kirkjuþings, ef stofnað verður, við Reykjavík.

En það var sérstaklega eitt atriði í frv., sem olli því, að ég stóð upp, en það eru ákvæði 15. gr. Efni hennar hygg ég, að sé algert nýmæli í lögum. Samkv. gr. á að lögskipa stéttarþing presta, og á svo hið opinbera að greiða kostnaðinn af þinginu, eins og af Alþingi. Hliðstæð dæmi finnast ekki hér á landi. Ég veit, að búnaðarfélagsskapurinn og fiskifélagsskapurinn hafa þing í sambandi við starfsemi sína, en þau bera kostnaðinn af þeim, eins og öðrum greinum starfseminnar, af því fé, sem Alþingi veitir til hennar, en þessi þing eru ekki styrkt sérstaklega. Hér er þessi lagasetning og fjárveitingin beinlínis og eingöngu bundin við kirkjuþingið. Búnaðarþingsfulltrúar hafa tekið kr. 12 í dagpeninga og aldrei farið fram á að fá sömu dagpeninga og alþingismenn. Og ég held, að „kirkjuþingmenn.“ ættu að láta sér nægja sömu upphæð á dag og fulltrúar bændanna. Fiskiþing og búnaðarþing fjalla um aðalatvinnuvegi landsmanna, og er því kirkjuþingið eða nauðsyn þess tæplega sambærilegt.

Ég viðurkenni, að þetta er ekki stórt fjárhagsatriði, en ég mun alls ekki greiða atkvæði með því, að fjárframlögum til kirkjuþings verði háttað þannig. Heldur mundi ég þá greiða atkv. með einhverri ákveðinni upphæð í þessu skyni. Annars gæti svona þing tekið upp á því að sitja í fleiri mánuði, þótt í frv. sé talað um 14 daga. Það mundi sækja um leyfi hjá ráðh. til að lengja tímann. Það mundi vera kölluð óþarfa meinbægni að synja slíks leyfis. Þannig var áður með Alþingi. Þar þurfti konungsleyfi til lengri setu en ákveðið var. Það verður litið á þetta ákvæði um lengd þingtímans sem hvert annað formsatriði, sem ekki sé ástæða til að fylgja bókstaflega. Vitanlega getur þingið setið eins lengi og því sýnist þrátt fyrir það.

Mér finnst þátttakan í þingi þessu vera nokkuð lítil samkv. frv. og tel því líklegt, að bráðlega kæmu fram kröfur um, að fulltrúum verði fjölgað til mikilla muna. Við það mundi kostnaðurinn aukast. Ég hygg því, að skynsamlegast sé á þessu stigi málsins, og sérstaklega eftir að hafa heyrt hina ágætu og fróðlegu ræðu hv. 1. þm. Rang., sem sjálfur er þjónandi prestur í þjóðkirkjunni og mikill áhugamaður um þessi mál sem önnur, að vísa þessu frv. frá, til betri undirbúnings og athugunar, á hvern hátt verði bezt komið í sæmilegt og viðunandi horf hinum ytri skipulagsmálum íslenzku þjóðkirkjunnar.