10.03.1941
Neðri deild: 14. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 36 í C-deild Alþingistíðinda. (2914)
45. mál, bændaskóli
Forsrh. (Hermann Jónasson) :
Það liggur í augum uppi, að þörf er fyrir fleiri bændaskóla í landinu en þá, sem nú eru, það sannar bezt aðsóknin að Hólum, og þó sérstaklega að Hvanneyri. Áður en frv. fer til n., vil ég benda á, að ég tel vafamál, hvort bæta eigi úr þessari skólavöntun á þann hátt, sem frv. gerir ráð fyrir.
Eins og kunnugt er, þá er aðsóknin að Hvanneyri mikil, svo mikil, að venjulega sækja þrisvar sinnum fleiri um skólann en hægt er að taka. Mín skoðun er sú, að bót á þessu skólamáli verði bezt ráðin á þann veg, að það verði tekið til athugunar í sambandi við almenna athugun á skólakerfi landsins, en það tel ég, að liggi fyrir. Ég býst við, að á þessu Alþ. verði borin fram till, til þál. um að endurskoða allt skólakerfi vort, sem nú virðist brýn þörf á. Það liggur í augum uppi, að nauðsynlegt er að gera breyt. á fyrirkomulagi menntaskólanna og háskólans, og ýmislegt annað þarf að lagfæra í þessu sambandi. Skólakerfi okkar er ungt, og nú fyrst er fengin veruleg reynsla á því, hvernig það hefur gefizt. Sú reynsla hefur sýnt, að full ástæða er til að taka það til rækilegrar athugunar. Af öðrum ástæðum var haldinn hér í sumar fundur, þar sem mættir voru skólastjórar hvaðanæva af landinu. Meðal annars ræddu þeir um skólana í sambandi við hernámið, og kom greinilega fram á þeim fundi, að skólastjórunum fannst full þörf endurskoðunar. Hefur verið ákveðinn fundur um Þetta næsta sumar, og væri æskilegt, að n. yrði skipuð, sem rannsakaði skólamálin og hefði síðan tækifæri til að ræða við alla skólastjóra landsins, um leið og þeir koma saman á fund. Það hefur komið til tals að breyta fyrirkomulagi héraðsskólanna, þannig að taka upp meira verklegt nám en verið hefur, en þetta fyrirkomulag er ekki hægt að framkvæma nema á tvo vegu. Hið verklega nám í héraðsskólunum er nú ekki nema kák, að meira eða minna leyti, og er erfitt að koma því öðruvísi fyrir. Hefur komið til tals að breyta einhverjum af héraðsskólunum í bændaskóla eða húsmæðraskóla, þar sem væntanlegar húsmæður og bændaefni fengju nokkra sérmenntun. Einnig mætti í þessum tilgangi halda einhver námskeið, þar sem þessir menn gætu aflað sér undirbúnings undir aðra skóla. Mun verklega námið verða sennilega næsta skrefið í héraðsskólamálum vorum. Einnig hefur komið til athugunar, hvort ekki væri rétt að breyta einhverjum af héraðsskólunum í bændaskóla, þar sem um væri að ræða eins árs nám, en Hvanneyri og Hólar tækju svo við af þeim og veittu frekari þekkingu í þeim fræðum, sem bændum mættu að gagni koma. Þetta hefur mikið verið rætt, og ég get hugsað mér, að ofannefnt fyrirkomulag verði tekið upp í framtíðinni.
Ég vildi aðeins með fáum orðum benda hv. landbn. á þetta, sem væntanlega fær málið til meðferðar. Ég geri ráð fyrir, eins og ég hef tekið fram, að á þinginu verði borin fram till. til þál. um, að skólakerfi vort verði tekið til athugunar og þá ekki síður þessi grein en aðrar.