21.05.1941
Neðri deild: 64. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 39 í C-deild Alþingistíðinda. (2919)
45. mál, bændaskóli
Frsm. minni hl. (Jón Pálmason) :
Eins og tekið er fram í nál. á þskj. 214 og 288 og hv. frsm. meiri hl. veik að, hefur n. ekki orðið sammála um frv., en við hv. þm. Borgf. leggjum til, að það verði samþ. óbreytt. Það hefur komið í ljós, að ágreiningur er ekki mikill í n. að því er snertir nauðsynina á aukningu bændafræðslunnar í landinu, heldur um hitt, hvort rétt sé að ákveða þetta strax. Gegn því hafa komið fram þau rök, að málið sé ekki nægilega undirbúið og að í ráði sé að skipa bráðlega milliþn. í skólamálum. Ég hafði ekki heyrt þessarar milliþn. getið fyrr en eftir að frv. var komið fram, hvort sem um hana hefur verið rætt áður eða ekki. En það var ekki verið að tala um neina milliþm. í fyrra, þegar verið var að breyta héraðsskólal. þannig hefur líka verið um flesta skóla, sem settir hafa verið á stofn undanfarin ár, einkum svo kallaða héraðsskóla, og ekki hefur þótt þörf á að fresta því að setja l. um húsmæðrafræðslu í kaupstöðum, þar til einhver milliþm. hefði verið skipuð. Þetta er því í mótsögn við ýmislegt, sem síður hefur verið gert hér á þingi.
Snertandi það, sem hv. frsm. meiri hl. sagði, að þetta hefði ekki verið tekið fyrir á fundi Búnaðarsambands Suðurlands, get ég sagt það, að þetta er í mótsögn við það, sem ég hef frétt, því að mér er sagt, að samþ. hafi verið mjög ákveðin áskorun um stofnun skólans.
Hér eru uppi tvær stefnur í skólamálum, og greinir þær á um það, hvort leggja eigi meiri áherzlu á bændafræðsluna eða unglingafræðslu í héraðsskólum. Við hv. þm. Borgf. viljum auka bændafræðsluna og draga heldur úr hinni, sem hefur ekki gefizt að öllu leyti vel undanfarin ár, þó að unglingaskólum hafi verið fjölgað. Því viljum við láta samþ. frv. óbreytt, enda þótt við játum það, að málið getur ekki komizt fram fyrr en eftir að átt hefur sér stað ákveðinn undirbúningur.
Held ég svo, að ekki sé þörf á að fara öllu fleiri orðum um þetta. Mér skilst, að stefnumunurinn sé lítill, a. m. k. í aðalatriðum. En ég vil lýsa yfir því afdráttarlaust, að ég tel heilbrigðara og í alla staði réttara að stofna bændaskólann á Suðurlandsundirlendinu en að stofna nýjan unglingaskóla, eins og ákveðið var hér í fyrra.