18.03.1941
Efri deild: 19. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 42 í C-deild Alþingistíðinda. (2925)
57. mál, bygging sjómannaskóla
Flm. (Sigurjón Á. Ólafsson) :
Þetta mál er gamall kunningi hér í d., enda þótt það birtist nú í nokkuð öðru formi en áður.
Á síðara þingi 1937 fluttum við hv. þm. Vestm. till. til þál. um að fela ríkisstj. að undirbúa þetta mál, og náði hún samþykki þingsins. Þar sem ekkert hafði gerzt í málinu árið eftir, var flutt hér enn ný till. af hv. þm. S.-Þ., sem gekk í svipaða átt, en eins og kunnugt er hefur þrátt fyrir þetta ekkert verið aðhafzt í málinu. Sjómannastéttin hefur bæði áður og síðan haft uppi háværar kröfur um, að ríkið endurbyggði stýrimannaskólann og kæmi honum í það horf, sem fullnægði kröfum tímans. Er það þá eitt aðalatriðið, að hann verði fluttur af þeim stað, sem hann er nú. Ég skal ekki fara út í að ræða það atriði sérstaklega, hvar hann á að byggjast, — það hafa komið fram margar raddir um það —, en hitt er aðalatriðið, að byggt verði skólahús, þar sem hægt sé að láta fara fram alla kennslu, sem sjómannastéttin þarfnast. Það er ekki hægt að neita því, að sjómannastéttin hefur orðið nokkuð afskipt einmitt í þessu efni, miðað við önnur skólamál í landinu.
Þetta frv. gerir ráð fyrir, að hafizt verði handa um byggingu skólans á þessu ári og að verkinu verði ekki lokið síðar en á árinu 1943. Það er hugsanlegt, að þetta gæti gengið hraðar, en mér þótti réttara að hafa tímann fyrir sér í þessu efni. Um undirbúning málsins er gert ráð fyrir að verði látin fjalla nefnd, skipuð fulltrúum sjómannastéttarinnar. Væri sjálfsagt, að atvmrh. skipaði formann þessarar n. Það má ef til vill deila um það, hvort n. ætti að vera stærri. þess má geta, að starfsgreinar sjómannastéttarinnar eru fleiri heldur en gert er ráð fyrir, að fulltrúarnir í n. verði. Má þar sérstaklega minnast á loftskeytamenn og matreiðslumenn, sem ekki eiga beinlínis mann í n. samkvæmt frv. Hvað viðvíkur loftskeytamönnum, þá skal ég taka það fram, að þeirra kennsla er nú eins og er á nokkrum hrakningi. Hún mun vera undir stjórn símamálastjóra, en engan fastan samastað hafa. Það er hins vegar ljóst, að margt af því, sem loftskeytamennirnir eiga að læra, væri hægt að kenna í hinum sameiginlega skóla. Skólahúsið ætti þess vegna að byggjast með það fyrir augum, að sérgreinar sem þessi gætu verið þarna með. Þá skal ég víkja að matsveinunum. Þeir geta ef til vill líka komið til með að nema við þennan skóla. Það má t. d. benda á, að við skólann gæti verið heimavist, þar sem heppilegt mætti teljast, að svo margir nemendur sem unnt er gætu dvalizt í skólanum. Ég teldi mjög æskilegt, að kennsla í matreiðslu gæti farið fram í skólanum. Í öðrum löndum, þar sem þessi mál eru komin bezt á veg, hefur hið opinbera að nokkru leyti stutt að þessari fræðslu og sumpart einstakir menn: Reynslan er sú, að alls staðar hefur reynzt þörf fyrir þessa fræðslu.
Ég geri ráð fyrir, að ef fallizt verður á þessa höfuðtillögu, þá verði að sjálfsögðu leitað til skólastjóra þeirra skóla, sem nú starfa, svo að sú þekking, sem fyrir hendi er, geti komizt að, þegar farið verður að gera teikningar í sambandi við bygginguna.
Um fjárhagshliðina vildi ég aðeins segja þetta: Ég geri ráð fyrir, að þeir erfiðleikar, sem ríkt hafa í fjármálum þjóðarinnar, hafi að nokkru valdið þeim drætti, sem hefur orðið á framkvæmdum í þessu máli af hálfu ríkisstj. En nú hygg ég, að ekki sé með réttu hægt að segja, að sú afsökun sé fyrir hendi. Og ekki sízt munu sjómennirnir líta svo á, að hið aukna fjármagn sé að verulegu leyti fyrir atbeina sjómannastéttarinnar. Þess vegna telur hún nú, að það megi ekki dragast lengur að hefjast handa í þessu máli. Og það er vitanlegt, að þörfin er svo rík, að sjálfsagt er einmitt nú að nota tækifærið til þess að hrinda þessu máli fram.
Ég skal ekki orðlengja frekar um frv. Ég skal geta þess, að þetta mál á eftir eðli sínu heima í sjútvn., og vil ég gera það að till. minni, að því verði, að lokinni þessari umr., vísað til þeirrar n.