10.06.1941
Neðri deild: 75. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 56 í C-deild Alþingistíðinda. (2958)
57. mál, bygging sjómannaskóla
Sveinbjörn Högnason:
Ég vakti athygli á framkomu hæstv. atvmrh. í þessu máli og öðrum og sýndi fram á það, hvernig hann hefði viljað hafa þingviljann að engu, ekki einungis nú, heldur einnig oft áður. Hæstv. ráðh. sagði, að það væri næsta broslegt að heyra, hver málsvarinn væri, um leið og hann skyggndist að ráðherrasæti hæstv. fjmrh., og mér skildist, að það væri vegna þess, að það var ekki maður í ráðherrasæti, sem kom fram með þetta. Honum fannst það undarlegt, að almennur þm. skyldi vera málsvarinn. Þetta bar víst að skilja á þann veg. En ég vil láta hæstv. ráðh. vita það, að þm. þykjast enn hafa sinn rétt til þess að bera fram sínar aðfinnslur. Alþ. hefur ekki enn þá afsalað sér neinum rétti í þeim efnum, hvað það samþykkir. Hæstv. atvmrh. var að tala um það, að mig hefði vantað hér í d., þegar hann hefði gefið sína yfirlýsingu, en ég held, að það farist engum síður en honum, af þeim sem sæti eiga hér á Alþ., að tala um það, að þm. séu fjarverandi, því að það er hreinasta undantekning að sjá hann hér á Alþ. í vetur, — það er hrein og bein undantekning. Þess vegna hefur hann sýnt það með sinni framkomu, að orð hans og athafnir eru í fullu samræmi hvort við annað. Hæstv. ráðh. hneykslast jafnvel á því, ef þm. bera fram frv., þannig að það hallast ekki á um yfirlýsingar eða athafnir í þessu efni. Hæstv. ráðh. sagði, að hann hefði það eftir fjmrh., að hann mundi greiða þessa upphæð, þó að það væri ekki nema heimild, og það væri nákvæmlega sama, hvort þetta væri greitt eftir 16. eða 22. gr. fjárl. Ég verð að álíta, að í slíkum yfirlýsingum felst það, að það skipti engu máli, hvort ríkisstj. hefur heimild til að gera eitthvað, eða hvort Alþ. samþ. að gera það. Þetta veit ég, að hæstv. ráðh. skilur vel, a. m. k. hefur hann mikið álit á sinni dómgreind. Hann sagði, að hugsun mín væri óljós og að ekki væri gott að átta sig á því, hvað ég væri að fara. Þetta get ég vel skilið í sambandi við það, að hann telur, að ráðh. hafi skarpari hugsun heldur en venjulegur þm.