10.06.1941
Neðri deild: 75. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 57 í C-deild Alþingistíðinda. (2963)

57. mál, bygging sjómannaskóla

Skúli Guðmundsson:

Ég tel þetta frv. alls ekki nægilega ve1 undirbúið, þar sem enginn uppdráttur eða kostnaðaráætlun liggur fyrir, framlag til byggingar samkv. 4. gr. frv. hefur ekki verið tekið upp í fjárl. neina á 22. gr., en sú heimild er þannig, að ríkisstjórnin má ekki nota hana, nema ríkissjóður hafi fé til umráða umfram lögboðnar greiðslur og fjárveitingar samkv. öðrum gr. fjárl. Segi ég því já.