08.05.1941
Efri deild: 55. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 58 í C-deild Alþingistíðinda. (2973)

145. mál, bráðabirgðatekjuöflun fyrir Hafnarfjarðarkaupstað

Sigurjón Á. Ólafsson:

Ég skaut því fram áðan, hvort ekki væri réttara að láta þetta mál fara til nefndar og þá líklega fjhn. eða allshn. Finnst mér, að hvað svo sem um tilgang frv. er, sé full ástæða til að athuga, hvort réttmætt sé að afnema þessi lög. Hv. þm. Hafnf. benti á, að hér væri aðeins um heimildarl. að ræða, en ég hef orðið þess var, að bæjunum er ekki sama um það, hvort heimildarl. eru felld úr gildi eða ekki, enda þótt heimildin sé ekki notuð. N. sú, er fengi málið til meðferðar, þyrfti að athuga, hvort réttmætt sé að svipta Hafnarfjarðarbæ þessum tekjum. — Það er svo um flesta skatta, að þeir eru óvinsælir, en ég efast um, að almenningur fyndi þess mikinn mun, þótt þessum skatti væri létt af.

Ég stóð upp til þess að gera það að till. minni, að málinu væri vísað til n., en býst hins vegar ekki við því, að það nái afgreiðslu á þessu þingi.