12.06.1941
Efri deild: 77. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 61 í C-deild Alþingistíðinda. (2983)

145. mál, bráðabirgðatekjuöflun fyrir Hafnarfjarðarkaupstað

Bjarni Snæbjörnsson:

Ég vil fyrst ræða þetta mál almennt, einkum af því að ég býst við, að ekki sé vanþörf á því eftir ræðu hv. frsm.

Það er rétt, að eins og sakir standa, hefur bærinn ekki þörf fyrir þennan tekjustofn til daglegs rekstrar, en á það verður að líta,, hversu bærinn var illa kominn af þeim örðugleikum, sem útgerðin átti við að stríða, þegar þessi lög gengu í gildi.

Við vitum, að þá var útgerðin í kaldakoli, og voru því engir möguleikar til þess að fá tekjur af henni. Varð bærinn því að skattleggja sína borgara meira en nokkur annar bær hefur gert á landinu, til þess að halda í horfinu, en þó söfnuðust verulegar skuldir, vegna þess að ekki var unnt að greiða vexti og afborganir af lánum, og var svo komið, að bærinn átti ekki fyrir skuldum. Nú hefur þetta, ár verið mjög gott fyrir Hafnarfjörð. — Þótt hv. frsm. segði, að Hafnarfjörður hefði einstök skilyrði til þess að standa sig vel, veit ég ekki, hverjir þeir möguleikar eru aðrir en útgerðin: Atvinnulíf í Hafnarfirði er mjög einhæft. Þar er enginn iðnaður, verzlunin er eingöngu við bæjarmenn og við höfum enga heildsala, sein við getur skattlagt. Vonandi stendur útgerðin sig vel í framtíðinni, en maður hefur ekki neina tryggingu fyrir því, að þessi eini gjaldstofn fari ekki lækkandi aftur, og verður þá að taka upp nýjar leiðir.

Þegar þessi skattur var lagður á árið 1938, var búizt við, að hann yrði óvinsæll, en því fer fjarri, að svo hafi verið. Nú mun enginn utan Hafnarfjarðar eða í láta sig muna að greiða þennan skatt, svo ég viti. Mér er nær að halda, að þótt þessi skattur yrði afnuminn nú, mundu fargjöldin bráðlega hækka á ný, og kæmi sú hækkun þá einhverjum öðrum aðila til góðs. Hins vegar tel ég mikla þörf fyrir bæinn að halda þessum tekjustofni, þótt ekki væri til annars en að gera honum kleift að ráðast í ýmsar framkvæmdir, sem bærinn hefur ekki getað sinnt vegna fjárhagsörðugleika og skulda.

Nú er málið komið í þann farveg, að búast má við, að Alþingi vilji gera einhverjar ráðstafanir í þessu sambandi og þá sennilega í þá átt, sem hv. fjhn. hefur lagt til, að skatturinn verði ekki innkallaður, meðan tekjur af útgerðinni eru eins miklar og nú eru.

Það er alveg rétt, sem hv. frsm. sagði, að þegar leitað er til Alþingis um einhverjar úrbætur í erfiðleikum, er ekki meiningin að halda því áfram, þegar úr rætist, en ég vil óhikað halda því fram, að þótt hagur Hafnarfjarðarbæjar hafi stórum batnað á þessu ári, séu þarfir hans meiri en annarra bæja á landinu vegna skuldasöfnunar fyrr í ára. — Ég hef borið fram brtt. þess efnis, að fé því, sem inn kemur til ársloka 1942, verði varið til þess að malbika eða steypa þennan veg í gegnum bæinn. Þessi lagfæring á veginum hefur staðið til í að minnsta kosti 10 ár, en fjárhagur bæjarins hefur alltaf verið svo erfiður, að ekki hefur verið viðlit að hefjast handa um framkvæmdir. Nú hefur verið ætluð nokkur upphæð í þessu skyni á fjárhagsáætlun bæjarins, en hún hrekkur skammt, vegna þess að efni er nú mjög dýrt, en þörfin er brýn og framkvæmdir verða að komast áleiðis í náinni framtíð. Mér finnst og réttlætanlegt að halda þessum skatti í þessu augnamiði, þegar þess er gætt, að það er partur af þjóðveginum, sem liggur í gegnum bæinn, og Hafnarfjörður hefur sáralítil hlunnindi af þeirri umferð. Öll verzlun Suðurnesjamanna, sem ekki fer fram í Keflavík eða Grindavík, á sér stað í Reykjavík, en ekki í Hafnarfirði. Hafnarfjörður hefur þannig engan hag af viðskiptum við utanbæjarmenn, en verður að leggja til veg fyrir þessa gífurlegu umferð og halda honum við. Á undanförnum árum hefur bærinn fengið að láni tæki hjá vegamálastjóra til þess að hefla veginn, en hefur alltaf orðið að greiða þau not fullu verði. Hefur bærinn því engan styrk fengið frá ríkissjóði til þess að halda veginum við.

Þetta dæmi er alls ekki hliðstætt við Laugaveginn, því hann liggur úr og í Reykjavík fyrir þá, sem viðskipti, eiga við Reykjavík sjálfa. Vegurinn um Hafnarfjörð er samgönguleið milli Suðurnesja og Reykjavíkur, og Reykjavík hefur hag af viðskiptum við Suðurnesjamenn, en ekki Hafnarfjörður.

Á þessum síðustu tímum hefur breytzt viðhorfið um það, hverjir fara milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur. Áður voru það Hafnfirðingar og Reykvíkingar, en nú er mikill hluti farþega úr brezka setuliðinu. Ég vil nú spyrja hv. alþm., hvort þeir álíti, að nokkuð sé á móti því, að Hafnarfjarðarbær fái þessi litlu fríðindi á móti öllum þeim óþægindum, sem Hafnfirðingar hafa af veru setuliðsins. Ég hygg því, að þegar hv. þm. hafa athugað þetta og þegar gengið er inn á þá breytingu að binda þennan tekjustofn í ákveðnu augnamiði, muni þeir ljá till. minni fylgi sitt, svo að hún nái fram að ganga.

Ég vænti þess, að hv. þdm. taki þetta til gaumgæfilegrar athugunar og verði þess valdandi, að lagfæring fáist á þennan vegarkafla, sem er áreiðanlega versti vegarkaflinn á leiðinni frá Stafnesi, þar sem vegurinn liggur lengst frá og til Reykjavíkur. Þeir þyrftu a. m. k. ekki annað en spyrja bílstjórana, sem ferðast þarna, hvort ekki sé full þörf á að lagfæra þennan veg sómasamlega, svo að hann mætti verða til frambúðar og ekki. til eyðileggingar farartækja meira en komið er.

Mér virðist það einnig á hv. frsm., að n. hefði ekki viljað fara lengra en þetta, vegna þess að l. væru bundin við ákveðinn tíma, eða bara til ársins 1942, og ef Hafnarfjarðarbær þyrfti á tekjuöflun að halda fyrir þann tíma eða um það leyti, þá væri honum heimilt að nota þessi heimildarlög eftir sem áður, en ef svo skyldi fara, þá liggur það í hlutarins eðli, að það er ólöglegt og leiðinlegt að vera að hringla með fargjöldin milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur, í staðinn fyrir að hafa þau hið sama. Og ég endurtek það, að eins,og sakir standa, þá finnur ekki nokkur sá maður, sem fer milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur, til þess, að hann borgi skatt til Hafnarfjarðarbæjar. Það, sem kom fram hér áður, bæði í framsögu fyrir þessu frv. hjá flm. og eins þegar annað mál var hér á dagskrá, að hann taldi, að þetta væri skattur á fátæklingunum og þeim, sem ekki gætu notfært sér það að fara í prívatbíl á milli bæjanna. Hann ætti bara að athuga það, hverjir það eru, sem fara á milli í strætisvögnum. Flestir þeirra eru að fara til þess að finna kunningjana, eða þá til þess að verzla eitthvað, en er það þá eingöngu við Reykjavík, en ekki Hafnarfjörð, og eru slíkt sjaldan nauðsynjaferðir.

Ég ætla svo ekki að hafa fleiri orð um þetta nú, en vonast til þess, að hv. þdm. sjái sanngirnina í þessu og samþykki brtt. mína við rökst. dagskrána.