04.04.1941
Efri deild: 31. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1254 í B-deild Alþingistíðinda. (30)
Fyrirspurnir um stjórnarráðst. o. fl.
Jóhann Jósefsson:
Herra forseti! Ég bið um að fá að leggja eina fyrirspurn fyrir hæstv. ríkisstj. Í sambandi við þau mál, sem nú eru efst á baugi, sem sé öryggisráðstafanir til varnar því, að skaði hljótist af árásum, sem fyrir kynnu að koma á landið. Beinist fyrirspurn mín að því, hvað hæstv. ríkisstj. hafi í hyggju að gera gagnvart tryggingum á fasteignum, sem kynnu að verða fyrir skaða frá hernaðaraðila eða í sambandi við hernað. Í öðru lagi langar mig til að spyrja, hvort þessari tryggingu, ef til kemur, sé einnig ætlað að ná til lausafjár, og á ég þar einkum við framleiðsluvörur, sem kunna að liggja á þeim stöðum, sem kynnu að verða fyrir slíku tjóni. Í þriðja lagi vildi ég spyrja um það, ef dráttur verður á þessari löggjöf og eitthvað kemur fyrir, áður en hún kemst á, hvort ganga mætti út frá því, að lög, sem um þetta kynnu að verða sett, verkuðu aftur fyrir sig, þannig að það tjón, sem á er orðið, þegar löggjöf væri um þetta sett, yrði líka tekið með sem bótavert eða bótaskylt.
Þessar þrjár spurningar vildi ég bera hér fram fyrir hæstv. ríkisstj. Ég tala hér um löggjöf, vegna þess, að mig minnir, að það hafi eitthvað verið talað um það í blöðunum. Það er víst dálítið um liðið síðan, að í ráði var, að svona löggjöf yrði sett.
Nú er skammt til þess, að þetta þing sé búið að sitja um tveggja mánaða skeið, og ég hef enn þá ekki séð bóla á neinum tilþrifum í þessu efni. Ég vil hins vegar benda á það, að víðsvegar, sérstaklega í veiðistöðvum, fara nú að liggja fyrir birgðir af dýrmætum framleiðsluvörum, sem einstaklingar þeir, sem hlut eiga að máli, eiga ekki kost á að fá tryggðar í þessum almennu tryggingafélögum fyrir því tjóni, sem verða kynni af hernaðaraðgerðum. Þetta mál er, að því er mér virðist, mjög aðkallandi, og ég verð að láta í ljós nokkuð mikla undrun yfir því, að hæstv. ríkisstj. skuli ekki vera farin að leggja fram neitt frv. um þetta mál fyrir Alþingi.